Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Vísindi og fræði

Stöndum saman rauðhausar

Þetta þarf nú ekkert að útskýra fyrir okkur rauðhausunum.... við erum aðlöguð ef svo má að orði komast
mbl.is Rautt hár og rysjulegt veður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vá hvað fékk blaðamaðurinn í sögu ???

Skondið þegar fréttamönnum verður á í að skrifa, blessaður maðurinn veit greinilega ekki að Tito eldri var leiðtogi Júgóslavíu frá lokum SEINNI heimstyrjaldar 1945 ekki fyrri heimstyrjaldar sem lauk 1918. Annars hefði hann setið að völdum í 62 ár ef sögukunnátta blaðamanns væri rétt
mbl.is Tito yngri foringi kommúnista
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvil í friði

Þá er genginn á vit félaganna sem féllu Harry Patch sem lézt í dag, þetta stríð virkar einhvern veginn á mann sem hálfgert fornaldarstríð, en mikið hefur hugrekki þessarar kynslóðar verið að æða inn í kúlnahríð sem óvinirnir demdu yfir þá, flautað og hlupið af stað vitandi vits að sárafáir lifðu áhlaupin af, hugrekki á báða bóga og ég held að ekki skifti máli málstaðurinn sem þessir menn börðust og dóu fyrir, hugrekkið er óumdeilanlegt..... Hvildu í friði Harry Patch


mbl.is Síðasti skotgrafahermaðurinn látinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vindgangur í geimnum

Ok kaupi þessa skýringu með hnerrann, en hvernig í ósköpunum leysa þeir vandamál með vindgang, örugglega ekkert gaman að freta í geimfarabúning.
mbl.is Hvernig hnerrar maður í geimbúningi?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Christiansborg

Svei mér ef þetta er ekki gamla Danska virkið Christiansborg, er held ég í dag sumardvalastaður forseta Ghana, einn af mörgum. Er samt ekki viss.......Kannske einhver þarna úti sem getur fundið út úr því.....
mbl.is Obama heimsótti þrælavirki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sykureyjarnar St Thomas, St Croix og St Jan

Þetta rifjar upp kafla í danskri sögu sem baunarnir eru ekkert of hrifnir af, en þessar eyjar voru seldar Bandaríkjamönnum fyrir slikk árið 1917. Voru búnar að vera baggi á danska ríkinu síðan 1848 þegar síðustu þrælarnir fengu frelsi.  Í dag eru þær aðsetur auðkýfinga og eru líka mikið sóttar af túristum um borð í crúserum sem sveima um Karíbahafið í dag. Danir naga sig sjálfsagt í handabökin  að hafa selt þær, væru líka þá sólarparadís þeirra........
mbl.is Flúði til Íslands undan þrældómi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

30.000 í Kópavogi.

Núna er ég svo kalkaður að ég man ekki hvað Reykvíkingar voru margir þegar breytt var úr bæjarstjórn 1958, að mig minnir, í borgarstjórn. Færi ekki svo á endanum að Gunnar Birgisson yrði borgarstjóri.
mbl.is Kópavogsbúar orðnir 30 þúsund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

AAAAaaaaaaaattsssjúúúúú

Hnerrinn hlýtur að vera ágætur fyrir botnvöðvana, þannig að það hljóta vera einhver tengsl. Það er ekki alslæmt þó að daman hnerri þegar hæst stendur í stönginni.   
mbl.is Hnerrandi kynlíf?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

H.M.S Hood (in memorian)

Sagan er skrýtið fyrirbæri, þegar svona frétt er lesin verður sagan svo ljóslifandi og löngu liðnir atburðir rifjast upp. Merkilegt hvernig menn upplifa atburðina Briggs fannst hann einungis hafa lifað af á meðan aðrir töldu hann hetju. Hood hét eftir frægum flotaforingja á átjándu öld og var stolt brezka flotans og sigldi umhverfis heiminn í heimsóknir hingað og þangað. Þegar seinna stríð skall á var brezku flotastjórninni vel ljóst að skipið var orðið úrelt og myndi ekki standast þýsku orrustuskipum snúning, en samt var það sent í veg fyrir Bismarck og því fór sem fór. Skipið tók þátt í árás á franska flotann í N-Afríku 1940 í kjölfar hrun Frakklands og var það að ég held eina aðgerðin sem það tók þátt í fyrir utan slaginn við Bismarck.


mbl.is Síðasti sjóliðinn af HMS Hood látinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nikulás var harðstjóri.

Mér sýnist að það sé að fenna yfir sporin hjá rússneskum, mér hefur nú skilist að Nikulás hafi verið skeytingarlaus um þegnana og lítið viljað slaka á stjórnartaumunum. Ríghaldið um völdin og ekkert gefið eftir. Drottningin ku hafa verið hötuð af almenningi og kölluð þýska konan og talin hin illi andi Nikulás , og ber þar hæst meint ástarævintyri með Rasputin hvað svo sem er til í því. Í fyrra heimstríði var hún talin draga taum þjóðverja og gekk sú saga að börn hennar hafi sagt að þegar þjóðverjar töpuðu orrustu grét mamma en þegar rússar töpuðu grét pabbi. Engu að siður er einhver ljómi yfir þessari fjölskyldu vegna hræðilegra örlaga og sögusagna um að Anastasia hafi lifað af morðin. Nú svo var móðir keisarans dönsk prinsessa Dagmar  dóttir Kristjáns IX þess er gaf okkur stjórnarskrá, þannig að við höfum smátengingu við Romanovana.
mbl.is Rússneska keisarafjölskyldan fær uppreisn æru
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Frikkinn
Frikkinn

Winston Churchill ( 1874-1965. ) Smekkmaður á vindla og Wiskey.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 201379

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband