Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Vísindi og fræði

Það var gott veður hér líka.

Hvurslags einkamál þeirra í Víkinni er veðurfarið, ég bara spyr ? Það var öndvegisveður líka í Garðabæ í sumar og  er því hér með komið á framfæri......
mbl.is Eitt hlýjasta sumar í borginni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spyr sá sem ekki veit

Fyrst ísbjörninn var smitaður að þráðormi sem er hættulegur lífríkinu og dýr sem narta í hræ af birni geta smitast. Þá vona ég að einhver þarna úti geti frætt mig og aðra um  hvort þá saur frá slíku dýri geti þá líka verið smitandi. Hundar geta víst smitast af lifrabólgu við að snuðra í skít frá öðrum hundum.


mbl.is Þverárfellsbjörninn smitaður af þráðormi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stórmerkilegt byggðasafn í Garðinum.

Stundum tökum við fjölskyldan okkur helgarrúnt suður með sjó og alltaf kíkjum við á byggjasafnið í Garðinum. það stendur við hliðina á vitunum tveimur. Þetta er að mínu mati eitt merkasta byggðasafn landsins, þar er t.d  bátasafn og merkilegt safn gamalla kompása, gíróvita og bátavéla. Nú svo eru munir sem tengjast byggða- og atvinnusögu í Garðinum, og margt fleira.Þar er einnig  greinargott kort sem sýnir skipsströnd á liðnum öldum. Mæli eindregið með að fólk geri sér ferð suðureftir og líti inn á safnið.
mbl.is Haldið upp á 100 ára afmæli í Garðinum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Víkingaskip.

Kormoran var eitt af mörgum svokölluðum víkingaskipum sem þýski flotinn sendi út á heimsh0fin til að dreifa kröftum Brezka flotans. Þetta voru fragtskip sem var breytt þannig að auðvelt var að dulbúa þau í gervi ýmissa skipa. Þau voru geysilega vel vopnuð og búin vistum til margra ára útivistar. Sum voru á sveimi til 1943, án þess að koma til hafnar, en þá voru bretar búnir að uppræta þau síðustu. Frægasta skipið hét Atlantis, en því var sökkt 1941.
mbl.is Flak þýsks herskips fannst við Ástralíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

gaman að byrja að blogga juhú

Jæja, þá er maður byrjaður að blogga eins og allir hinir,

« Fyrri síða

Höfundur

Frikkinn
Frikkinn

Winston Churchill ( 1874-1965. ) Smekkmaður á vindla og Wiskey.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 201379

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband