Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Menning og listir

Augað fer, þar sem brjóstin eru ber.

 Það eru hörmuleg tíðindi fyrir aðdáendur hennar, en ekki er öll von úti held ég. En það eru sosum til myndir af fendurunum hennar á síðum Playboy og Netinu . Og sjón er sögu ríkari ........

mbl.is Verður ekki berbrjósta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alfreð Flóki

Ég átti þess kost að kynnast Alfreð Flóka örlítið. Hann var farþegi með skipi sem ég  var á. Kom um borð í Arhus þar sem við vorum í dokk, og síðan heim til Íslands . Þetta var um viku tími og var hann afar sérstæður maður
mbl.is Í fóstri hjá Flóka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Garðskagaviti

Það er eitthvað svo dulúðugt við vita. Standa þarna einhvers staðar, sárasjaldan sem manni gefst kostur á að komast inn í þá. Mæli alveg hiklaust með Garðskagavita, en þarna í Garðinum  standa reyndar tveir vitar, gamall sem hætt er að nota og svo nýlegur. Svo er þar við vitana alveg stórkostlegt byggðasafn, vel varðveitt leyndarmál. Eitt hið besta og flottasta sem ég hef komið á  hérlendis. Enda var byggðasagan í Garðinum  einstök á okkar mælikvarða.
mbl.is Vitar verða vettvangur listviðburða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Annað hvert ár .

Skemmtilegt sjónvarpsefni þegar snobbliðið hristir demantana. Nei agætis tenging við Óskarinn,  en mér þætti vænlegra að halda Edduna á 2 ára fresti, þéttleikinn er of mikill árlega. Of fáir að keppa um verðlaun.  Á tveggja ára fresti væri samkeppnin vonandi meiri og  hnossið dreifíst meira. En endilega halda áfram ekki veitir af.
mbl.is Hverjir hljóta Edduna í ár?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hún er hálfgerð múmía

Hún hefur bara verið ágætlega sæt á yngri árum, og vonandi getað sungið eitthvað, furðulegt hvað fólk getur breyzt.
mbl.is Silja var poppstjarna þegar hún var 16 ára
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ofmetin

Ofmetin sem forseti og leikstýra og ekkert meira um það að segja. Sorry ágætu íslendingar en ég er ekki sammála svona prjáli.


mbl.is Fyrsti sendiherra leiklistar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Of stór veizla

Nenni ekki lengur inn í Vík á menninganótt, ok að deginum til. Er eiginlega orðin of stór hátíð, gaman að skoða myndlistasyningar, og allskyns uppákomur, en mér fannst flugeldasýningin tapa sjarmanum þegar hún var flutt út á ytri höfnina. En hún sést mun betur þar reyndar. Hef ekki farið í bæinn sl 3 ár að kveldi vegna troðnings og og mannfjölda. Hlakka hins vegar mikið til Ljósanætur í Reykjanesbæ sem er hrein snilld og á Árni Sigfússon þakkir skildar fyrir þó að hann til heyri íhaldinu.
mbl.is Menningarnótt tókst vel
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hamingjan sanna

Þetta er ein af þeim héraðsskemmtunum sem eru vel varðveitt leyndarmál, ég hef farið á Hamingju daga nokkrum sinnum og skemmt mér stórvel. Bænum er skift í hverfi með mismunandi lit, rauða-, bláa-,orange-, og sveitirnar eru gular. Svo er þar ágætt tjaldstæði og stórfín sundlaug sem er afar barnvæn. Furðuleikarnir eru svo toppurinn á öllu saman, en sjón er sögu ríkari. Ekki spillir fyrir að heimamenn eru hæfilega klikkaðir og stórskemmtilegir, en hafa verður í huga að þeir eru rammgöldróttir.
mbl.is Vel heppnuð hátíð á Hólmavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

Frikkinn
Frikkinn

Winston Churchill ( 1874-1965. ) Smekkmaður á vindla og Wiskey.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 96
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 86
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband