Leita í fréttum mbl.is

Garðskagaviti

Það er eitthvað svo dulúðugt við vita. Standa þarna einhvers staðar, sárasjaldan sem manni gefst kostur á að komast inn í þá. Mæli alveg hiklaust með Garðskagavita, en þarna í Garðinum  standa reyndar tveir vitar, gamall sem hætt er að nota og svo nýlegur. Svo er þar við vitana alveg stórkostlegt byggðasafn, vel varðveitt leyndarmál. Eitt hið besta og flottasta sem ég hef komið á  hérlendis. Enda var byggðasagan í Garðinum  einstök á okkar mælikvarða.
mbl.is Vitar verða vettvangur listviðburða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigríður Jósefsdóttir

"Árið 1897 var byggður steinsteyptur viti yst á Garðskaga eftir teikningum verkfræðinga dönsku vitamálastjórnarinnar. Vitinn var lagður af árið 1944 og stendur mannvirkið enn þá en ljóshús hefur verið fjarlægt. ...
   Garðskagaviti þótti með bestu vitum landsins því hann stóð lágt og þoka var ekki til vandræða. Hins vegar þótti vitinn vera í hættu vegna landsbrots og í miklu brimi sást vitinn ekki fyrir sjóroki.
   Því var byggður nýr steinsteyptur viti á Garðskaga lýðveldisárið 1944 og var hann vígður við hátíðlega athöfn 10. september sama ár."                                    Úr bókinni Vitar á Íslandi.

Sigríður Jósefsdóttir, 17.1.2009 kl. 15:45

2 Smámynd: Frikkinn

Það getur verið alveg ótrúlega fallegt þarna á tánni. Mér hefur alltaf einhvern veginn þótt þessir tveir vitar vera alvöru vitar , kannske auðvelt aðgengi valdi því.

Frikkinn, 17.1.2009 kl. 19:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Frikkinn
Frikkinn

Winston Churchill ( 1874-1965. ) Smekkmaður á vindla og Wiskey.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 201365

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 13
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband