Leita í fréttum mbl.is

Mannréttindabrot ????

Það er orðið hart í heimi ef fólk má ekki hafa skoðanir og tjá sig um þær, burtséð frá hverjar þær skoðanirnar eru , hver setur þær fram eða í hvaða stöðu viðkomandi er. Maður spyr hvort ekki sé verið að traðka á tjáningarfrelsinu þegar fólk lendir í kuldanum fyrir skoðanir, minnir dáldið á ritskoðun Sovétsins sáluga .
mbl.is Ný ungfrú Kalifornía sammála þeirri fyrri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ekkert að því að hafa skoðanir en þegar þær skoðanir ganga beinlínis á mannréttindi annarra þá þarf fólk að rökstyðja þær ansi vel til þess að hægt sé að verja þær með tjáningarfrelsisrökunum.

Mannréttindi minnihlutahópa hljóta að vera jafnrétthá mannréttindum þeirra sem telja sig þess umkomna að stjórna mannréttindum téðra minnihlutahópa.

Sólborg (IP-tala skráð) 12.6.2009 kl. 15:22

2 Smámynd: Frikkinn

Mér finnst þetta ekki spurning um minnihlutahópa, eða hvort gengið sé á rétt annara heldur frekar hvort fólk megi setja fram sínar og verði þá að standa og falla með þeim. Getur varla verið að það  sé verið að ganga á rétt annara þegar fólk lætur skoðanir í ljós í fjölmiðlum.

Frikkinn, 12.6.2009 kl. 15:32

3 identicon

Þannig að þér fyndist ekki gengið á rétt þinn ef það væri stanslaust verið að halda því fram að þú mættir ekki giftast þeim sem þér sýndist? Og að þú sem gagnkynhneigður karlmaður þyrftir endalaust að berjast fyrir þeim rétti þínum nema bara að það væri alltaf verið að grafa undan baráttu þinni af meirihlutanum með því að slengja fram órökstuddum upphrópunum um að "leyfa þér" að haga þínu lífi eins og þér sýnist. (Segjum að dæminu væri snúið við og samkynhneigðir væru í meirihluta).

Jú mér finnst þetta einmitt snúast um minnihlutahópa og að ganga á rétt þeirra með áróðri (sem mér finnst allt annar hlutur en að halda fram skoðunum).

Sólborg (IP-tala skráð) 12.6.2009 kl. 18:10

4 Smámynd: Frikkinn

Afhverju má fólk ekki segja skoðanir sínar ?

Frikkinn, 12.6.2009 kl. 19:09

5 identicon

Tjáningarfrelsið er ein aðalforsenda lýðræðis, vegna þess að þegar skoðanir fá að heyrast á það að geta leitt til breytinga á lögum og reglum samfélagsins. Þannig að sá sem hendir fram skoðun sinni getur allt eins búist við því að þurfa að verja hana, og kemur þá jafnan í ljós á hverju hún er byggð. Yfirleitt er auðveldara að verja skoðanir með rökum heldur en að segja eitthvað í líkingu við: "mín tilfinnning er sú að það sé eðlilegast og þess vegna best að mennirnir hagi sér svona..."

Fæstir eru á móti því að Tami Farrell tali en margir hafa aðra skoðun en hún á því hvort samkynhneigðir megi giftast - vilja meina að Tami boði brot á mannréttindum. Þeir eru kannski ekki með msnið hennar og geta ekki útkljáð þetta mál en eins og þú segir þá getur hún auðvitað sagt það sem hana langar til meira að segja aæefjkeæoiafj ef hana langaði það og gæti borið fram.

Ragna (IP-tala skráð) 12.6.2009 kl. 19:39

6 Smámynd: Guðmundur St Ragnarsson

Nákvæmlega Frikkinn.

Guðmundur St Ragnarsson, 13.6.2009 kl. 02:14

7 identicon

hvað með rétt þeirra sem eru mótfallinir því að þvingað sé uppá þá þeirri skoðun að kynvilla sé sjálfsögð? Það eru milljarðar manna þeirrar skoðunar og þeir eru kúgaðir af þessum mjög svo fámenna hóp.

Ragnar Örn Eiríksson (IP-tala skráð) 13.6.2009 kl. 07:15

8 identicon

Ragnar:

Það er ekkert að því að hafa þá skoðun að samkynhneigð sé "ónáttúruleg" eða whatever. Það sem er EKKI í lagi er að takmarka rétt fólks út af meintum ónáttúruleika. Að heimta kosningar þar sem meirihlutinn ræður (sá meirihluti sem sjaldnast veit neitt um líf minnihlutans sem verið er að kjósa um) er brot á mannréttindum.

Jafnrétti fólks er ein grundvallarforsenda lýðræðis - það eiga ALLIR rétt á því að lifa við jafnrétti, svartir, hvítir, gulir, konur, fatlaðir OG samkynhneigðir - ekki allir NEMA samkynhneigðir. Hvernig er hægt að segja það jafnrétti að samkynhneigðir "megi" ekki giftast? Og hvers vegna telur meirihlutinn (sem er EKKI samkynhneigður) sig umkominn að "leyfa" það eða ekki? Ég skil bara alls ekki hrokann sem felst í því. Mannréttindi á ekki að þurfa að kjósa um - alveg eins og það væri þversögn að kjósa um hvort fólk mætti hafa málfrelsi þá er alveg jafn fáránlegt að kjósa um hvort fólk megi búa við jafnrétti.

JS (IP-tala skráð) 13.6.2009 kl. 09:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Frikkinn
Frikkinn

Winston Churchill ( 1874-1965. ) Smekkmaður á vindla og Wiskey.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband