Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, desember 2007

Gleðilegt nýtt ár ágætu landsmenn.

 

 Óska öllum nær og fjær gleðiríks nýárs og skotmönnum flugeldanna gæfuríkrar skotgleði.

 


Umhverfissóðar

 

  Skrýtið hvað fólk er alltaf kærulaust þegar óveður er í aðsigi, samanber fólkið upp á Langjökli, gat sagt sér þetta sjálft og eyðir dýrmætum tíma björgunarsveita. Í götunni þar sem ég bý í Garðabæ eru allar tunnur hjá nágranna mínum 5 stykki , kúffullar af jólapappir og allskonar rusli, í þessum skrifuðum orðum liggur ein tunna á hliðinni og allt að fjúka um götuna, og við sem búum nálægt þurfum að sætta okkur við sóðaskap og kæruleysi vegna þess að nágranninn nennir ekki í Sorpu.


Ég á afmæli í dag.

  Ég fékk að sofa til rúmlega ellefu í dag, var þá vakinn af frúnni og heimasætunni, fékk kaffi og meðlæti í rúmið og góðar gjafir að sjálfsögðu fylgdu. Það er alltaf gaman að eiga afmæli þó tilhlökkunin minnki með árunum. Þegar ég var yngri var visst vandamál að halda upp á daginn, erfitt að bjóða bekkjarfélögum vegna jólafría. En í dag bara nýt ég þess að eiga daginn og vera með fjölskyldunni ,og vera dekraður.

Ísjakar

Las það einhversstaðar nýlega að vegna hlýnunar jarðar , gætu svona slys orðið algengari. Ísjakar brotna af íshellunni á norður- og suðurskautunum, og gætu farið á flakk á siglingaleiðum. Bendi á að nýlega fórst annað skemmtiferðaskip á svipuðum slóðum sem einnig rakst á ísjaka.


mbl.is Norskt skemmtiferðaskip rakst á ísjaka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aðskilnað strax

  Aðskilnaður er löngu orðin tímabær,  óþarfi að hafa kirkjuna taglhnýtta við ríkisvaldið.

Það er óvirðing við þá íbúa landsins sem tilheyra öðrum trúfélögum, eða þá að allir sitji við sama

borð og þjóðkirkjan.

 


mbl.is Álíka margir hlynntir og andvígir aðskilnaði ríkis og kirkju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áfram Stjarnan

 

   Hún er vel að titlinum komin, einfaldlega bezta handknattleikskona landsins. Og mikil fyrirmynd í yngri flokkum Stjörnunnar........................Áfram Rakel Dögg


mbl.is Rakel og Ólafur handknattleiksfólk ársins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bette Davis Eyes

 Þótt fyrr hefði verið. Hún var einfaldlega sú  langflottasta gyðja gömlu myndanna , og ekki spillti þessi óræði augnsvipur.Fer ekki að koma tími á Gunnar Eyjólfsson að verða þrykktur ??????

 


mbl.is Bette Davis á frímerki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Wilson Garston

Þetta eru siglandi tímasprengjur þessi skip, spurning hvenær verður stórslys.Lág laun og í mörgum tilfellum eiga fákunnátta í siglingum á veðrasömum hafsvæðum, og "málleysi" sökina þegar óhöpp hafa orðið.  En líka eru innan um fagmenn .Þetta er eitthvað sem íslendingar ættu að hafa í huga þegar nýja siglingaleiðir opnast á norðurhveli á næstu árum


mbl.is Jólagönguferð til að skoða strandað skip
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

della

Auðvitað er þetta ekkert nema slagur hinna fáu stóru, engir aðrir fá að komast að. Búin að missa allan áhuga á fótbolta, þetta snýst allt um peninga og smælingjarnir eiga enga von um að gera eitthvað, nema þá helst að þvælast fyrir risunum og tapa með minnstum mun... nei takk ekki fyrir mig

 


mbl.is Alex Ferguson: Ekki tveggja liða barátta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Frikkinn
Frikkinn

Winston Churchill ( 1874-1965. ) Smekkmaður á vindla og Wiskey.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 96
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 86
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband