Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2008

Að fanga athyglina

Það er einn möguleiki í stöðunni fyrir Obama. Fara úr að ofan og í þröngar gallabuxur
mbl.is Obama berst við að ná til kvenna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta skref.

Er ekki þarna komin vettvangur fyrir SI-liðið að fara til Íraks að bjarga mannslífum, eða stöðva notkun þar á sprengjum sem innihalda efni skaðleg fyrir náttúruna, gaman að vita hvernig Sámur frændi tæki á því þegar þau færu að hlekkja sig vuið stríðstólin.


mbl.is Fimmtíu og sjö látnir í Írak
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vinnuskólinn

Leiðbeinendur eru vel að því komnir að fá launahækkun enda er starf þeirra vanmetið og vanþakklátt. Sést bezt á því hvaða skoðun flestir hafa á vinnuskólanum.
mbl.is Vinnudeila í Vinnuskóla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í hverra þágu ?

Held að þetta SI-fólk ætti frekar að snúa sér að einhverju öðru sem er meira aðkallandi, t.d stöðva dráp á saklausu fólki í Írak eða kjarnorkuverum í þeirra heimalöndum.  Þetta eru bara strengjabrúður í höndum einhverra annara sem vilja beina athyglinni frá öðrum vandamálum. Afhverju fara þeir ekki til Kína þar sem er verið að reka milljónir frá heimilum sínum í kjölfar virkjannaframkvæmda sem hlýtur að vera meira aðkallandi,  í stað þess að vera hrekkja OR og fleiri.
mbl.is Með aðgerðir á Hellisheiði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver trúir þessu ?

Þetta er of ótrúlegt til að geta verið satt. Stjórnvaldið í Belgrad hlýtur að hafa vitað hvar hann var alllan tímann, annað getur varla staðist.
mbl.is „Var bara samstarfskona Karadzic"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á loðnu

Hlýtur að vera óþægilegt að hugsa til þess að "tölvusérfræðingar" séu að stúdera á manni það allra helgasta. Menn ættu að muna danska máltækið,,,,, Den skallede har ingen  lus. Ekki að það skifti máli en alltaf er það hjartalagið sem skiftir öllu þegar upp er staðið.
mbl.is Hárvöxtur Miller aukinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sigurður ormur í auga

Sigurð Kára hefur örugglega klæjað í brúna augað af forvitni um hvað Davíð hefur viljað honum, og séð sjálfan sig enda í einu af æðstu embættum þjóðarinnar enda er frjálshyggjan að gera út af við greyið.
mbl.is Davíð boðaði Sigurð Kára á leynifund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óðagot

Ég sá einu sinni rjúpnaskyttu sem var að koma að bíl sínum eftir slaka veiðiferð. Þá sá skyttan rjúpu vera valhoppa í kringum bílinn, í fátinu sem kom á manninn hlóð hann haglarann í hvelli og hleypti af, en fattaði um leið og hann tók í gikkinn að hann hafði sett merkjaskot í sleðann og litaðist bíllinn rauður um framhlutann en rjúpan flaug á brott.
mbl.is Skaut óþæga garðsláttuvél
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tregir kanar

Eitthvað eru kanarnir tregir að þurfa prófa hana 25 sinnum til að sannfærast um að hún gæti leikið íslenzka konu. Kannske er Anita ekki nógu tröllsleg eða þeir haldi að hér búi eskimóar. En hvað um það,  til lukku Anita.
mbl.is Nýtur þess að leika íslenska konu í Hollywood
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vígalegt skegg.....

Merkilegt að enginn skylda hafa þekkt karlugluna, nema að Serbum hafi staðið á sama. Enda telja þeir sig fórnarlömb engu síður en aðrir í þessum ógæfusömu löndum.
mbl.is Hafði áhuga á heilun og hugleiðslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Frikkinn
Frikkinn

Winston Churchill ( 1874-1965. ) Smekkmaður á vindla og Wiskey.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 96
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 86
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband