Leita í fréttum mbl.is

Í hverra þágu ?

Held að þetta SI-fólk ætti frekar að snúa sér að einhverju öðru sem er meira aðkallandi, t.d stöðva dráp á saklausu fólki í Írak eða kjarnorkuverum í þeirra heimalöndum.  Þetta eru bara strengjabrúður í höndum einhverra annara sem vilja beina athyglinni frá öðrum vandamálum. Afhverju fara þeir ekki til Kína þar sem er verið að reka milljónir frá heimilum sínum í kjölfar virkjannaframkvæmda sem hlýtur að vera meira aðkallandi,  í stað þess að vera hrekkja OR og fleiri.
mbl.is Með aðgerðir á Hellisheiði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Við förum ekki til Kína af þremur ástæðum:

1) Tilgangur okkar er ekki bara sá að vekja athygli á mannréttindabrotum heldur líka á þeirri eyðileggingarstarfsemi sem verið er að fremja á náttúru Íslands.

2) Það er mun líklegra að mótmæli skili árangri í lýðræðisríki þar sem aðgengi almennings að fjölmiðlum er tiltölulega frjáls. Það er ekki hægt að ná árangri nema almenningur gefi stjórnvöldum þau skilaboð að við viljum ekki styðja mannréttindabrot og til að almenningur geri það, þarf hann fyrst að vita hvað er í gangi.

3) Við mótmælum hér af því að við viljum mótmæla hér. Ef við færum til Kína til að mótmæla myndi grátkórinn bara jarma; af hverju mótmælið þið ekki frekar á Íslandi þar sem er möguleiki að það skili árangri. Það er sama hverju er mótmælt, hvar eða hvernig, það verða alltaf einhverjir sem reyna að segja mótmælendum hvað þeir ættu frekar að vera að gera.

Ég ber mikla virðingu fyrir þeim sem fara til Kína til að mótmæla mannréttindabrotum þar, hvort sem þau beinast að stjórnvöldum eða stórfyrirtækjum. Ég heiti hér með á þig 20.000 kr í ferðastyrk þegar þú ferð þangað sjálfur en ef þú hefur engin plön uppi um það, vinsamlegast láttu þá aðra um að ákveða það sjálfir hvort þeir fara til Kína eður ei. 

Eva Hauksdóttir (IP-tala skráð) 28.7.2008 kl. 14:37

2 identicon

Það á að taka þetta helvítis pakk og sparka því út á hafsauga og hætta með öllu að birta fréttir um einhverja vanvita sem hlekkja sig við vinnuvélar ofl. Það er fréttaflutningurinn sem þetta hyski þrífst á.

Baldur Þór (IP-tala skráð) 28.7.2008 kl. 14:49

3 identicon

Nei Baldur minn, það er umræðan meðal almennings sem við þrífumst á. Takk fyrir þitt ómetanleg innlegg sem sýnir gjörla rökfestu og málefnalega afstöðu andstæðinga okkar.

Eva Hauksdóttir (IP-tala skráð) 28.7.2008 kl. 15:19

4 identicon

Ekki misskilja mig Eva mín ég dáist að því hversu trú þú ert þinni sannfæringu en öll þessi umræða er á sama veg. Fólk fordæmir aðferðir ykkar þó að margir séu sammála málstaðnum. Aðgerðir ykkar eru svo sannarlega ekki málstaðnum til framdráttar.

Og hvaða áhrif hefur það svo að stöðva vinnu á einum bor í smá tíma? Mannskapurinn fær lengri kaffitíma og svo halda menn áfram og umræðan fer í gang um það hvað þetta sé ruglað lið. Er þetta ykkur virkilega til framdráttar? Ég hef séð að þú hefur commentað á megnið að því sem hefur verið bloggað um þessa frétt og þú veist það sjálf að það er svotil enginn sammála þér

Baldur Þór (IP-tala skráð) 28.7.2008 kl. 15:36

5 Smámynd: Frikkinn

Ágætu Eva og Baldur, látið hjalið ykkar fara fram á ykkar eigin síðum.

Frikkinn, 28.7.2008 kl. 16:27

6 identicon

Sem betur fer eru nú til fleiri viðhorf en þau sem hæst láta á moggablogginu. Margir hneykslast á aðferðum okkar en þetta eru nákvæmlega sömu aðferðir og hafa verið notaðar í öðrum stórum málum.

Stærsti og mikilvægasti árangurinn felst í því að ná athygli almennings. Flestir eru farnir að átta sig á því að hugmyndin um umhverfisvæna stóriðju er haugalygi. Flestir vita hinsvegar ekki hvað álfyrirtækin eru að gera fólki í fátækum ríkjum eða um þrælabúðirnar sem þau reka t.d. í Hondúras. Nú er ég búin að vekja athygli þína á því, sem merkir að þú getur haldið baráttunni áfram með siviliseraðri aðgerðum.

Ef þú vilt nánari upplýsingar skal ég með ánægju gefa upp heimildir. 

Eva Hauksdóttir (IP-tala skráð) 28.7.2008 kl. 16:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Frikkinn
Frikkinn

Winston Churchill ( 1874-1965. ) Smekkmaður á vindla og Wiskey.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 201357

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband