Leita í fréttum mbl.is

Eru rasismi á uppleið ?

Það er með ólíkindum að til skuli fólk sem sér ásæðu til að agnúast út í Pólverjana, nú þegar hluti þeirra er á förum. Þeir komu í leit að vinnu og peningum og hver vill ekki fá borgað fyrir að vinna. Einu sinni var til stór hópur farandverkamanna sem fór landshluta á milli að vinna eftir því hvar uippgripin voru og engum datt í hug að úthúða því fólki. Við erum öll gullgrafarar í eðli okkar og fólk ætti að skammast sín þegar það er að hnoða í Pólverjanna. Þeir eru sumir hverjir komnir til að vera og við verðum að venja okkur við það. Ég þekki nokkra Pólverja og get ekki sagt annað en að þeir séu ágætis fólk. En það eru líka til Íslendingar sem telja sig yfir aðra hafnir, og líta niður á landa sína í krafti auðs og valda, þessum hóp sem er í nöp við Pólverjana væri nær að beina spjótum sínum að þeim og því óréttlæti sem við gengst hér félagslega jafnt og launalega. Það vandamál var til áður en þeir komu og engin virðist hafa dug til að reyna leysa það.
mbl.is Hópast heim til Póllands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristbergur O Pétursson

Það var hlegið að Pólverjunum þegar hægt var að ráða þá í vinnu fyrir smánarlaun. Nú þegar harðnar á dalnum eru þeir sakaðir um að taka af okkur störfin. Þeir eru álitnir annars flokks fólk, á svipaðan hátt og afar okkar og ömmur voru álitin annars flokks þegar þau tóku sig upp úr sveitinni og fluttu á mölina í leit að vinnu. Og kunnu ekki orð í kaupstaðardönskunni sem heldri borgurum íslenskum þótti fínt að tala sín á milli og niður til verkafólks á planinu.

Kristbergur O Pétursson, 30.8.2008 kl. 10:50

2 identicon

rasismi er þegar fólki er í nöp við aðra kynþætti en sinn eigin, (pólverjar eru af sama kynþætti og íslendingar, þó með smávægilegu slavnesku blóði)

þjóðernishyggja er þegar fólk vill landinu sínu og sínum samlöndum það besta..

stór munur þarna á,, hafðu staðreyndirnar á hreinu kallinn minn.

amj (IP-tala skráð) 30.8.2008 kl. 11:27

3 Smámynd: Frikkinn

Rasismi getur birst í mörgum myndum meðal annars að hafa andúð á öðru fólki vegna uppruna, litarháttar og kynþáttar og þá skiftir ekki máli hvort þú ert gulur, rauður, grænn eða hvítur. Danir töldu íslendinga á sínum tíma vera annars flokks, ÞANNIG AÐ KYNNA SÉR MÁLIÐ ALVEG EN EKKI LYFTA SÉR Á HÆRRA PLAN MEÐ VANDLÆTINGU ÁGÆTI arnj.

Frikkinn, 30.8.2008 kl. 11:40

4 identicon

Nei rasismi er ekki á uppleið. Að sjálfsögðu vilja íslendingar íslendingum vel. Þegar þrengja tekur að hvern ræður þú í vinnu íslending eða útlending? Rasismi hefur ekkert með það að gera.

Þetta orð rasismi hefur orðið enga merkingu lengur vegna ofnotkunar. Í dag má ekki opinberlega líka illa við einstakling af öðru þjóðerni án þess að vera úthúðaður rasisti.

Ísak Þórarins... (IP-tala skráð) 30.8.2008 kl. 13:39

5 Smámynd: Frikkinn

Gott ef svo er.

Frikkinn, 30.8.2008 kl. 15:15

6 Smámynd: Birna M

Ég samgleðst þeim að geta nú loks farið heim og geta átt von á betra lífi heima hjá sér. Það gera það flestir af illri nauðsyn að fara frá átthögum og ættingjum, jafnvel eiga von á að sjá foreldra sína ekki aftur á lífi, en neyðast til að fara til að eiga sjens í betra líf. Auðvitað fannst manni nóg um á tímabili, en nú batnar hjá þeim og þá fara þeir heim og þá minnkar álagið á okkur í kreppunni. Þetta er flest besta fólk eins og við.

Birna M, 30.8.2008 kl. 15:26

7 identicon

Ísak Þórarins:

"Nei rasismi er ekki á uppleið. Að sjálfsögðu vilja íslendingar íslendingum vel. Þegar þrengja tekur að hvern ræður þú í vinnu íslending eða útlending? Rasismi hefur ekkert með það að gera"

.......priceless!

Brynjar M (IP-tala skráð) 30.8.2008 kl. 17:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Frikkinn
Frikkinn

Winston Churchill ( 1874-1965. ) Smekkmaður á vindla og Wiskey.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband