Leita í fréttum mbl.is

Erki Englendingur er víst til.

Colin Firth, Hugh Grant, ásamt David heitnum Niven eru svo hrikalega enskir eins og fólki finnst að þeir eigi að vera,  og Tony Blair ekta enskur pólitíkus. Hann orðar hlutina einhvern veginn svo enskt. Eitthvað sem amerikanar geta ekki.
mbl.is „Erkienglendingurinn“ er goðsögn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Getur stúlkukindin leikið ?

Miðað við fyrri afrek er öruggara að P.H leiki sjálfa sig, þá þarf hún ekkert að nota "heilann" .
mbl.is Paris Hilton í My Name Is Earl
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Indy klikkar ekki.

Myndirnar um Índjána-Jónas eru stórgóðar og hafa bara elst vel . Mætti pottþétt þegar sú nýja verður sýnd. Ungur frændi minn vann um tíma í 10-11 verzlunni í Austurstræti og lenti í að afgreiða Fordinn þegar hann skaust út af hótelinu í Aðalstræti að verzla sér kvöldsnarl. Frændi stamaði og tafsaði af feimni, en Harrison Ford klappaði honum á öxlina hughreistandi og brosti sínu fræga brosi.


mbl.is 200 milljónir horft á sýnishornið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hamingju með daginn Leðurfés........

Ég sá þessa mynd sem unglingur og hún verkaði sterkt á míg þá, óhugnaðurinn og niðurbútaðir líkamshlutar voru frekar skerí . Ógleymanleg var húsgagnasmíðinn hjá honum . Klassísk hrollvekja af beztu gerð.
mbl.is Leatherface á afmæli í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stjarnan bikarmeistari

Leikurinn var mjög spennandi og mikið gekk á, Stjörnustelpurnar þurftu svo sannanlega að hafa fyrir sigrinum, glopruðu niður góðu forskoti og lentu 2 mörk undir , en hrukku svo aftur í gang  og unnu góðan sigur. En mikið var leiðinlegt að HSÍ skyldi ekki leyfa þeim að njóta sigurstundarinnar ótruflaðar, því Fram lið karla kom inn á völlinn , nánast á sömu sekundu og leiknum lauk og fór að hita upp, þá átti eftir að afhenda sigurverðlaun. Til skammar og óvirðing við kvennahandboltann sem á svo miklu betra skilið.


mbl.is Stjarnan bikarmeistari í fimmta sinn eftir sigur á Fylki, 25:20
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ljóskulegt

Dööööööööööööööööö...............Æ þetta er dálítið kjánalegt.


mbl.is Ásdís Rán gæti unnið tugi milljóna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Prince charming........................

Þetta er dulítið furðulegt mál, varla hefur Beta bláa leyft að krúttið Harry væri í eldlínunni að þruma á Talíbana. Þriðji í erfðaröðinni og sem slíkur ómissandi. Nema hann hafi fengið að skjóta á varnarlaust fólk??  Ku vera býsna algengt í þessum heimshluta. Hans er hinsvegar eflaust sárt saknað af dömum Lundúnaborgar sem verða að skemmta sér án konunglegrar nærveru. Annars er ég  konungssinni og hlynntur að leggja niður lýðveldisfyrirkomulagið og fá konung. Af hverju ekki að bjóða honum krúnuna,  enda eflaust ólíklegt að hann taki nokkurn tímann við þó framarlega sé í röðinni á Bretlandseyjum .
mbl.is Prinsinn tók þátt í bardögum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skrýtinn titill.

 Árunum milli stríða kom út bók hérlendis sem bar titilinn : Hugvekjur fyrir kristna menn og kommúnista:. Mér hefur alltaf fundist þetta frekar skondið heiti, en nafnið lýsir frekar pólítísku ástandi í landinu á þeim tíma held ég.......


mbl.is Leitað að furðulegasta bókatitlinum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Klámhundur gengur laus.

En hvað er vinnufélaginn að gera í frístundum ? Æ gleymdi því,  hann/hún horfir á klámmyndir . Hver er munurinn ?
mbl.is Lögreglukona rekin fyrir að leika í klámmynd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Frikkinn
Frikkinn

Winston Churchill ( 1874-1965. ) Smekkmaður á vindla og Wiskey.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.9.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband