Leita í fréttum mbl.is

Náttúruvernd gleðihúsanna

Þetta kunna þýskir að meta , koma hjólandi og fá afslátt hjá
skeiðklukkudrottningunum, annars þykir mér 70 evrur ansi dýrt. Gjaldið
ku hafa verið um 50 þýsk mörk fyrir Evru-upptöku, en þá hækkaði allt um
helming, dálítið sem fylgjendur Evrunnar ættu að hafa í huga áður en
lengra er haldið. Svo er spurning hvort að smokkum sé sleppt til að
spara enn meir og lækka gjald fyrir þjónustuna. Las einu sinni í blaði
að það væri vel þekkt vandamál í Frankfurt og Hamborg að klóakleiðslur
séu stíflaðar á mánudögum eftir fjörmiklar helgar í vændishverfum
borganna
mbl.is Umhverfisvænt vændishús
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er kallinn hennar að leita ?

Þessi kall er bara illa uppalinn og ekkert annað, svona gerist bara þegar menn veita enn mótspyrnu, þá stinga merarnar af.......
mbl.is Lýst eftir meri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Christiansborg

Svei mér ef þetta er ekki gamla Danska virkið Christiansborg, er held ég í dag sumardvalastaður forseta Ghana, einn af mörgum. Er samt ekki viss.......Kannske einhver þarna úti sem getur fundið út úr því.....
mbl.is Obama heimsótti þrælavirki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

247 ár til hvers ?????

Tilgangslaust finnst manni að kveða upp svona dóma, annað hvort á að afrétta mannfýluna strax þ.e í gálgann sem er ódýrast fyrir samfélagið eða hreinlega kalla hlutina réttum nöfnum . Lífstíð án möguleika á náðun með tilheyrandi kosnaði, uppihald og fæði ævilangt. Svona margfaldir dómar þykir mér vera rugl.
mbl.is Raðnauðgari fær 247 ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vitar á Íslandi

Vitar eru merkilegt fyrirbæri og segja heilmikla sögu án þess að þorri fólks geri sér grein fyrir því, því þeir eru hluti af samgöngusögu þjóðarinnar , settir upp til að leiðbeina sjófarendum í myrkri og einnig í björtu.  Greiddu fyrir samgöngum......
mbl.is Brennið þið, vitar! á Dalatanga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hamingjan sanna

  Hamingjudagar á Hólmavík eru vel varðveitt leyndarmál seem fólk veit ekki af , en kannske setur einhver staðsetninguna fyrir sig. Þetta er nú ekki nema 3 tíma akstur frá höfuðborgarsvæðinu, hef farið þarna nokkrum sinnum og ætti enginn að láta Hamingjudaganna fara framhjá sér, bænum er skift í liti eftir hverfum bláa, rauða og appelsínugulahverfi, nú svo skarta sveitirnar í hring gulu. Þarna er oftast margt um að vera , listasýningar, popptónleikar og allskyns skemmtiatriði nú svo má ekki gleyma Galdrasýningunni en þar ræður ríkjum "stórklikkaður" galdramaður . Eina sem ég get fundið að Hamingjudægunum er tímasetningin á Furðuleikunum sem eru afar skemmtilegir , byrja yfirleitt eftir hádegi á sunnudegi þegar flestir aðkomumenn eru farnir að hugsa sér til hreyfings heim , mættu kannske vera á laugardegi , en sjón er sögu ríkari á Hamingjudögum.............Góða skemmtun
mbl.is Fjör á Hamingjudögum á Hólmavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver trúir svona bulli ?

Þetta er nú einungis rykmökkur sem er þyrlað upp til að hressa upp á dvínandi vinsældir enda um erkiíhald á Páfastóli að ræða , della hvernig sem á það er litið ....
mbl.is Leifar Páls postula fundnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Suðurstrandarvegur

Skil ekki hvað menn eru að kúldrast röðinni , fer oft suðurstrandarveginn heim á svona helgum, smá hristingur en kem á skikkanlegum tíma heim........
mbl.is Mikil umferð til Reykjavíkur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hrikaleg niðurlæging fyrir Þorskinn

Bretum er ekkert heilagt  til að kvelja okkur Íslendinga. Nú taka þeir þorskinn fyrir á heimavelli og niðurlægja hann opinberlega, ekki fá þeir að veiða hann lengur á Íslandsmiðum .
mbl.is Hylur nektina með íslenskum þorski
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Frikkinn
Frikkinn

Winston Churchill ( 1874-1965. ) Smekkmaður á vindla og Wiskey.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.6.): 39
  • Sl. sólarhring: 72
  • Sl. viku: 125
  • Frá upphafi: 203217

Annað

  • Innlit í dag: 30
  • Innlit sl. viku: 101
  • Gestir í dag: 29
  • IP-tölur í dag: 29

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband