Leita í fréttum mbl.is

Sorry karlinn

Þetta er gallinn við lýðræðið þegar þeir sem vilja ráða lenda "óvænt" í minnihluta.

 

  Kyngdu þvi Páll, þú  ert greinilega ekki vinsæll í flokknum.


mbl.is Páll: Niðurstaðan kom á óvart
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Háspenna í "fjárhúsinu" .

Þetta fer að verða ansi spennandi, draumaprinsinum hans Dóra kastað úti í ystu myrkur.

Breytir hinsvegar ekki að Framsóknarflokkurin er úlfur í sauðsgæru þessar vikurnar. Sorglegt að þeir skuli ekki hafa vit á að leggja sjálfa sig niður.


mbl.is Höskuldur og Sigmundur áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Karamellur og Mr G

Mikið helv.... hafa varamenn Crewe verið glaðir að fá karamellur, 3sinnum er asskoti gott.

   Til lukku Mr G


mbl.is Guðjón Þórðarson: Upphafið að langri ferð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er eins og heiðra geldan hrút.

Er það ekki að bera í bakkafullan lækinn að heiðra hrúta  fyrir framhjá skot. . Hann brást öllum rollunum sem leiddar voru undir hann. Ekkert stendur eftir og engin prins tekur við merkinu. Ömurlegt hlýtur að vera Framsóknarmaður í dag.

Eða eins og gamalt arabiskt máltæki segir  "ekkert er ömurlegra en vera blindur í Gaza".

 

 


mbl.is Guðni Ágústsson heiðraður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hráskinnaleikur Framsóknar.

Skítafýla af öllu saman hjá Frömmurunum , núna sveipar úlfurinn sig sauðsgæru. Þeir eru að reyna breyta ímynd sinni hjá þjóðinni, þykjast alsaklausir. Svo komast þeir aftur að kjötkötlunum og sama svínaríið hefst. Planta sínum mönnum í allar helstu valdastöður hjá hinu opinbera. Nokkuð ljóst að áróðursmaskínan innan floksins er að pota Páli að, annað er varla flokkselítunni þóknanlegt.
mbl.is Svara spurningaflóði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Garðskagaviti

Það er eitthvað svo dulúðugt við vita. Standa þarna einhvers staðar, sárasjaldan sem manni gefst kostur á að komast inn í þá. Mæli alveg hiklaust með Garðskagavita, en þarna í Garðinum  standa reyndar tveir vitar, gamall sem hætt er að nota og svo nýlegur. Svo er þar við vitana alveg stórkostlegt byggðasafn, vel varðveitt leyndarmál. Eitt hið besta og flottasta sem ég hef komið á  hérlendis. Enda var byggðasagan í Garðinum  einstök á okkar mælikvarða.
mbl.is Vitar verða vettvangur listviðburða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hlýtur að hafa verið Þjóðverji

Þessi eini sem las leiðbeiningarnar getur varla hafa verið annað en þýskur enda þýðverskir þekktir fyrir að fara að reglum, annars er ósköp eðlilegt að fólk tryllist við svona aðstæður, hræðslan , óttinn við að sitja fastur mikill.
mbl.is Ólík viðbrögð í nauðlendingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hundur í Bjarmalandsför.

Þetta er nú bara fyndið. En ekki dytti mér í hug að þrúkka hundinn minn um áhuga hans á þjóðfélagsmálunumm. Hans aðaláhugaefni er heimiliskötturinn sem sýnir honum ótrúlega mikla þolinmæði, en ást hans þ.e hundsins  á kettinum er ekki endurgoldin. Kisa finnst eflaust hundurinn ótrúlega heimskur , að halda að hann Eðalkötturinn elski hund ....... e e e e.......no way. Cool

Kisi vill halda sínum stað í tilverunni og sofa í friði í körfu inni hjá heimasætunni, eins og hann hefur alltaf gert.


mbl.is Fámáll hundur í viðtali á N4
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mummi og móðurmjólkin

Já það er þetta með liðhlaupana , eða á að kalla þá flokkadrætti. Skipta um flokk eins og ekkert sé , ég er ekki að skilja þetta alveg. Hvað vakir fyrir manninum ? Er gulrót hangandi einhvers staðar á bak við tjöldin. Hmm mm fær bitling þegar þeir komast næst undir sængina hjá Íhaldinu.
mbl.is Heim í heiðardalinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Frikkinn
Frikkinn

Winston Churchill ( 1874-1965. ) Smekkmaður á vindla og Wiskey.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 5
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 141
  • Frá upphafi: 203235

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 110
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband