Leita í fréttum mbl.is

(banka)-druslur

Ææææææææææ misskildi fyrirsögnina , var að vona að þettu væru fyrrverandi auðkýfingar og braskarar. En það má alveg senda þá til Íraks, örugglega þörf fyrir skemmdarvarga þar.
mbl.is Druslurnar sendar úr landi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lýðskrumari

Hann er engu að síður afburðafær lýðskrumari og ekki vízt að hann verði góður forseti. Hvað þá hagstæður okkur Evrópubúum.
mbl.is Forystuhæfileikar Obama
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sorglegt dæmi um spillingu.

Enn eitt dæmið um spillingu þeirra sem þykjast vera "verkalýðsforingjar" . Sitja báðum megin borðsins, velta sér upp úr peningunum okkar sem við greiðum í fitnandi sjóði. Að manngreyið hafi viðurkennt mistök er ekki nægjanlegt. Hann á að sýna manndóm og axla ábyrgð, og víkja. Hann er sorglegt dæmi hvernig flokkarnir skiftu á sínum tíma verkalýðsfélögunum á milli sín á sínum tíma . Sjálfstæðismenn hafa alltaf ráðið innan VR og engin breyting sjáanleg á þeim bænum. Þessi ágæti maður var handvalinn af fyrirrennara sínum til að taumarnir lægu réttu megin, en vonandi hefur hann vit á að hætta  og sýna fordæmi. En það er svo dýrðlegt að drottna að það er hæpið því miður.
mbl.is Vilja stjórn VR burt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skondnar nafngiftir

Skondið hvernig svona hlutir geta haft áhrif á nafngiftir , t.d í Yom Kippur stríði Ísraela og Araba árið 1973 beittu Arabar sovéskum eldflaugum sem hétu Sam-7 með góðum árangri og í kjölfarið fengu nokkur hundruð nýfæddra drengja nafnið í Arabalöndunum í ofsahrifningu foreldranna.
mbl.is Barnið skal heita Obama
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þegar ég kemst að...................

Þá byrja gæðingarnir að bíta í kökuna, og bitlinga sig og sína. Svona eru allir pólitíkusar, skiftir engu hvort þeir heita Geir, Obama, Brown  eða Mugabe. Allir eru þeir handbendi afla sem vilja komast að. Að mínu mati er þessi gaur Obama  í Vorsatúni bara enn einn ameríkaninn sem er hættulegur umheiminum og umhverfinu. Endurtek þá skoðun mína að það er sorglegt að stórt land eins og BNA skuli ekki eiga frambærilegri kandidata en þennan mann. Það er enginn maður fólksins til og alls ekki í stjórnmálum,  hann er einungis lýðskrumari og ekkert annað. Sorry ágætu íslendingar en ég sé ekkert gott við hann.

.


mbl.is Obama byrjaður að raða í embætti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Private Lucas

Einhvern veginn finnst manni fyrra-heimsstríð vera hálfgert fornaldarstríð. En ég  ekki vissum að hann verið einn FÁRRA sem tók þátt í báðum heimsstyrjöldunum Fjölmargir úr brezku og þýsku herjunum börðust í báðum stríðunum þar á meðal þó nokkrir Íslendingar. Nánast allir yfirmenn höfðu verið í fyrra stríði og margir óbreyttra hermanna.
mbl.is Tók þátt í báðum heimsstyrjöldum en barðist aldrei
Tenging við þessa frétt hefur verið rofin vegna kvartana.

Kyntröllið Hugh Hefner

Mikill tími er skiljanlegur í ljósi aldurs, eflaust lengi að gagnast Holly M.


mbl.is Hefner tekur tíma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Grípum geirinn í hönd ll

Nú verður Geir að sýna festu og taka málið upp innan Nato. Þar er væntanlega önnur pólitík í gangi. Hann hefur flotið fram og aftur undanfarið, núna er stóra tækifærið . Hóta til t.d úrsögn úr Nato.
mbl.is IMF-beiðni frestað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fröken Ísland feit og falleg

Þetta er skemmtilegt framtak að láta sér detta svona keppni í hug. Held samt að íslenzkar konur séu tregar að taka þátt. Útlitsdýrkunin sem tröllríður öllu er of mikil því miður.
mbl.is Fröken feit og falleg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Frikkinn
Frikkinn

Winston Churchill ( 1874-1965. ) Smekkmaður á vindla og Wiskey.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.9.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 11
  • Frá upphafi: 203480

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband