Leita í fréttum mbl.is

Gay-gay og aftur gay

Til hamingju með daginn samkynhneygðir nær og fjær. Þegar svona margir mæta vaknar hjá manni spurning hvort ekki væri nær að stiga skrefið til fulls og breyta göngunni í Ástagöngu eða Love Parade furir alla eins og tiðkast sumstaðar erlendis, þar gætu allir verið með atriði eða rölt með, í stað þess að kenna við ákveðna þjóðfélagshópa.
mbl.is Tugþúsundir í miðborginni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hærri prísar

Og þá fá þeir ástæðu til að hækka benzínverð, ef leiðslurnar eru í hættu
mbl.is Georgía kallar eftir vopnahléi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tvískinningur hjá honum

Loksins eitthvað af viti já Bush, svo er bara að sýna fordæmi og leggja niður vopn í Írak, vegna þess að átðkin þar ógna stöðugleika í nærliggjandi ríkjum. Kunnulegt eða hvað, hann er fastur í skítnum upp fyrir haus í Írak og væri nær að huxa um eigin skít í stað þess að atast í öðrum til að beina athyglinni frá Iraksstríðinu
mbl.is Hvetur Rússa að hætta árásum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rússland v/s Georgía

Þetta er eins og lesa gömul blöð frá stríðsárunum, frásagnarstíllinn og atburðarrásinn
mbl.is Her Rússa nálgast höfuðborg Suður-Ossetíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fáninn okkar

Sé ekkert athugavert að nota fánann frjálslega s.b breta sem nota fánann í öllum mögulegum og ómögulegum útgáfum. Ég keypti t.d skeinipappir einu sinni í Englandi í brezku fánalitunum. og aðra rúllu með mynd af þáverandi forsætisráðherra Maggie Thatsher. Fáninn er sameiningartákn og á að bera virðingu fyrir honum en hann á líka geta þá verið eitthvað sem fólk notar við öll huxanleg tækifæri, sem bol,skyrtu nú eða nærbrækur og sundföt. Virðinginn þarf ekki að þverra þó fáninn sé notaður öðruvísi en við erum vön.

 

 


Carl Heinrich Pfander

Hvaða máli skiftir af hvaða heiðursfólki hún er komin út frá. Heiðurinn er þeirra en ekki hennar, s.b forsætisráðherra Ástralíu sem ku vera komin af nærbuxnaþjóf og er assskoti ánægður með það. Forfeður skifta engu máli þegar upp er staðið nema máske að hafa skapað ætt. Ég væri barasta ánægður ef ég ætti ættir að rekja til þessa þýska rauðliða. Hafa smá allimannablóð í æðum "cool " .
mbl.is Viktoría komin af þýskum kommúnista
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Amerískt réttlæti...... nei takk.

Þetta er þeirra réttlæti, og ekki hlustað á aðra. Kviðdómur sem getur haft andúð á sakborningi, vegna þess að hann er litaður, illa klæddur úr fátækra hverfi, eða með leiðinlegan talanda, fyrirlítur manninn kannske fyrirfram og hann fær þyngstu refsingu oft af að mér skilst illa ígrunduðu máli.
mbl.is Mexíkanskur fangi tekinn af lífi í Texas
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

þó að sjáist í þau

Tvöfalt siðgæði lýsir þessu bezt hjá kananum. Klámiðnaðurinn þrífst þar og dafnar í skjóli fáranlegra reglna, en svo má ekki sjást pínu-pínulítið í brjóst eða rass í sjónvarpi, vitna bara í Steinrík "Kanar eru klikk ".

 


mbl.is Eva Mendes of djörf fyrir Bandaríkin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Copenhagen Hilton

Danskurinn alltaf kammó og óformlegur, gott hjá þeim. Þeir ættu að fara með hana í Legoland á eftir Tívolíinu.
mbl.is Paris Hilton í Kaupmannahöfn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fagurt fley

QE2

Það verður sjónarsviftir af QE2 af heimshöfunum, fegurð hennar og glæsileika er viðbrugðið. Hún er sannkallað augnakonfekt þeim sem unna fallega smíðuðum skipum og ber hún vandvirkni  smiða sinna fagurt vitni. Mér finnst það synd að hún endi ævina sem spilavíti fyrir auðkýfinga, en eflaust er gaman að geta gist þar um borð og notið veitinga. Gamaldags smíðalag hennar er ægifagurt og fær maður sæluhroll að virða hana fyrir sér.


mbl.is Sögufrægt skemmtiferðaskip
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Frikkinn
Frikkinn

Winston Churchill ( 1874-1965. ) Smekkmaður á vindla og Wiskey.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.9.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband