Leita í fréttum mbl.is

Kata kærasta.

Stúlkukindin veit hvað hún er að gera, vonandi að papparassarnir leggi ekki líf hennar í rúst í nánustu framtíð. Annars getur verið fróðlegt að fylgjast með jólum hjá Betu, Pusa og fjölskyldu. Hvar fær hvað og í hvaða röð(sic)
mbl.is Kate verður heima á jólunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Pohjois-Suomi

Þetta er náttúrulega frábært að danskir skyldu uppgvöta að þessi fatnaður hentaði á norðurhjara Grænlands. 66"norður verður nú að fara að taka stökkið til fulls og selja finnska hernum skjólfatnað, það hlýtur að vera kalt í norður Finnlandi  á veturna. Það getur verið nógu asskoti kalt í Helsinki á veturna.
mbl.is Danskir hermenn í fatnaði frá 66°Norður á Grænlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gíraffi á flótta.

Ekkert skrítið við það, hávaxinn og sér vel í kringum sig, fótfrár með afbrigðum.
mbl.is Gíraffi forsprakki sirkusflótta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Súrar gúrkur

Hvað er hægt að segja, Tvær ljóshærðar silikonur, stórglæsilegar,  báðar vanar myndavélum, gúrkutíð í Hollywood, máske er örlítið minna að fá af hlutverkum , þá er bara koma með eitthvað sem vekur eftirtekt.
mbl.is Pamela Anderson fellir dóm: Jessica er hóra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Krúnurakaðir í vanda

Tilvistarvandi munka er auðskilið mál, bænalestur, snemma í háttinn er ekki lífstíll sem hentar ungum mönnum í dag. Nú svo má eiga von á næturgesti ef eitthvað er að marka fréttir. En núna eru betri tímar framundan, það verður dansað á hverju kvöldi og lesið úr Harry Potter, skemmtikvöld með nunnum, já lífsgleðinn allsráðandi og vonandi að ungir menn taki nú við sér og gangi í klaustur.
mbl.is Sálnahirðar slá í gegn í raunveruleikasjónvarpi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Guðjón Þórðarson, sá heitasti í dag !!!!!

Hlýtur að fara styttast í að Guðjón fari að sækja um atvinnuleysisbætur eða sækji fram á knattspyrnuvöllum Evrópu, ef það vill hann einhver. Errm
mbl.is Skagamenn sáu rautt í 2:0-tapleik gegn KR
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ein með öllu

Bráðmyndarleg kona sem tekur til sinna ráða, ekki slæmt. Örugglega einhver sem vill kynnast henni. Good luck lady.
mbl.is Auglýsir hús sitt og hjarta á netinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hundar og snobbaðir eigendur

Er þetta fólk ekki að spauga , er það orðið svo snobbað að hundurinn verður að vera vel ættaður. Er fólk að upphefja sig með gæludýrinu, Hundar heita orðið einhverjum þulum sem jafnast helst á við konungborið fólk. Ekki dugar lengur að hundurin heiti Snati, Snotra eða Lappi, Stjarna. Ekki dytti mér í hug að eyða stórfé í einhvern garm sem heitir bununafni, æ nei eg held mig við gamla góða sveitahundinn sem er með óvissan uppruna enda er mér alveg sama hvort hundurinn minn er heitir Jón eða Séra Jón ég get alveg labbað með honum úti við án þess að hafa áhyggjur af ætterni eða hvort allir stara á hann, vá hvað hann er sætur.
mbl.is 570 hundar á sýningu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áfram "fiskimannabærinn" Hull

Þetta lízt mér vel á, er að spá í að halda með litla liðinu næsta vetur þó ég sé annars laus við boltabakteríuna.Skemmtilegra að sjá hvað litlu liðin geta meðal þeirra stóru, enski boltinn  er hættur að vera skemmtileg íþrótt 3-4 lið sitja um meistaratitilinn í krafti fjármagns og dæmi hver fyrir sig. Íslendingar ættu að hafa smátaugar til Hull enda voru sölur íslenskra togara tíðar þar á árum áður.  Kom nokkrum sinnum til Hull þegar ég var til sjós og ef ég man rétt er þar, frekar en í Grimsby , gata með 54 pöbbum og stundum kepptumst við félagarnir að drekka one pint á hverri krá og alveg til enda , en engin náði því.
mbl.is Nýliðar Hull ætla að styrkja hópinn verulega
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hamingjan sanna

Þetta er ein af þeim héraðsskemmtunum sem eru vel varðveitt leyndarmál, ég hef farið á Hamingju daga nokkrum sinnum og skemmt mér stórvel. Bænum er skift í hverfi með mismunandi lit, rauða-, bláa-,orange-, og sveitirnar eru gular. Svo er þar ágætt tjaldstæði og stórfín sundlaug sem er afar barnvæn. Furðuleikarnir eru svo toppurinn á öllu saman, en sjón er sögu ríkari. Ekki spillir fyrir að heimamenn eru hæfilega klikkaðir og stórskemmtilegir, en hafa verður í huga að þeir eru rammgöldróttir.
mbl.is Vel heppnuð hátíð á Hólmavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Frikkinn
Frikkinn

Winston Churchill ( 1874-1965. ) Smekkmaður á vindla og Wiskey.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.9.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 203482

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband