Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Mobbið í Kringlunni.

Þessi ágæti Formaður sem gerði í brækurnar verður endurkjörinn með stæl, vitiði til. Enda er samtryggingakerfið slíkt að erfitt er að ráða við það. Smölun af elliheimilum kemur sterklega til greina, nú svo má baktala menn út í hið óendanlega. Breiða út orðróm um eitthvað vafasamt úr lífsferli viðkomandi sem vogar sér að bjóða fram gegn sitjandi formanni. Nú svo nýtur formaðurinn þess að geta nýtt sér alla aðstöðu á skrifstofu VR og fjármagn úr sjóðum félagsins.

Mótframbjóðendur fá pottþétt ekki aðstöðu hjá félaginu , og þar tala ég af reynslu. Eðlilegast væri að ALLIR sem hyggjast bjóða í sig fram fengju sömu aðstöðu og tiltekna fjárhæð frá VR. Þyrftu með öðrum orðum að hafa fyrir því og núverandi formaður þar ekki undanskilinn. Persónulega fyndist mér að núverandi formaður ætti að sjá sóma sinn í klúðrinu, og ekki bjóða sig fram.


mbl.is Framboðsfrestur hjá VR framlengdur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Féhirðir gerist Dýralæknir

Já hvernig væri að hlusta á Raddir fólksins í landinu og segja af sér. Árni getur farið í dýralækningar enda þrælvanur að fjárvana bændur. Stattu þig gaflaradrengur.
mbl.is Krefjast afsagnar Árna Mathiesen
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Byltingin að borða börnin sín ?

Hef skilning á því að búðareigandinn sé eitthvað spældur yfir grjótkastinu. En þessi frétt fær ótrúlega mikið pláss miðað við margt annað. Með öllu óskiljanlegt að konukindin skuli blanda þessu tvennu saman. En svona er þetta þegar maður vill einn ráða. Það er frekar veruleikafirrt að halda að þetta tengist, sorry sé ekki samhengið. Ég lít frekar á þetta sem kosnað þess að eiga húsnæði eða hafa rekstur í miðborginni . Svo getur hún alltaf farið í Hringrás með blýið og fengið aura fyrir það plús tryggingabætur...
mbl.is Ráðist gegn Nornabúðinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á að taka mark á skoðanakönnunum ?

Skoðanakönnun er náttúrulega einungis skoðanakönnun, og ef pólitíkusarnir tækju mark á þeim væru kosningar orðnar ansi þreytandi fyrirbæri, og svo er spurning hvort kannanir eigi rétt á sér

því þær geta virkað skoðanamyndandi.


mbl.is Ríkisstjórnin nýtur stuðnings 36% kjósenda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Forseti í naflaskoðun.......

Eftirtektarvert hvað margir hafa skoðun á forseta vorum. Ýmist með eða á móti. Það minnir okkur á að betra er að vera umdeildur en óumdeildur... Haltu áfram  Ólafur,

.


Rauðir fánar dregnir niður ?

Það er með ólíkindum að kommúnismi lifi á þessu eyríki mitt í sólarparadís Karíbahafsins. Einn dag fá Kúbverjar frelsi, en Castro er engu að síður litríkur karakter , vindlaunnandi og kvennamaður, lagði meðal annars þekkta Bandaríska sjónvarpskonu, og  fór létt með að halda 4-5 tíma ræður og halda  athygli áheyrenda. Verður eflaust minnst sem mikilmennis sem er rétt að vissu marki.
mbl.is 50 ára byltingarafmæli á Kúbu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Morðæði Ísraela

Ekki geta Palestínumenn svarað af sömu hörkunni. Ímyndið ykkur hvað mundi gerast ef Palestínumenn dræpu háttsettan Ísraela............. úff manni dettur þá helst í hug að á Gaza-ströndinni yrði umhorfs eins og í Varsjá í stríðslok þegar Ísraelar hefðu lokið sér af. Skulum vona að vitsmunirnir yrðu ofar ofbeldinu
mbl.is Einn forystumanna Hamas féll
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heyr-heyr Ólafur

  Hann er greinilega meðvitaður um hlutverk sitt núna, lízt vel á að Ólafur heimsæki fólkið,  ekki gera stjórnvöld neitt til að róa þjóðina í landinu. Hugsa einungis um flokkshagsmuni og gæðingana sem töpuðu öllu......
mbl.is Þjóðarátak nýrrar sóknar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fótaskortur á lyklaborði

Dálítið illa orðuð fyrirsögn, ég hef alltaf staðið í þeirri trú að sprengjuárásir séu alltaf banvænar. Varla er verið að sprengja blöðrur....
mbl.is Banvænar sprengjuárásir í Írak
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Siðblinda BNA.....

Deginum ljósara að umhyggja Bandaríkjamanna er engin fyrir Palestínumönnum. Ef Hamas eru hryðjuverkasamtök, hvað má þá kalla Ísraelsstjórn. Kannske finnst Bush og co  Ísrael vera góðgerðarsamtök sem útrými óværu. Hmmmmm   minnir á nasistana. Gyðingar lærðu jú eitthvað af þeim.  Sorglegt þegar gott fólk á slæma stjórnendur.
mbl.is Segir Hamas vera hryðjuverkasamtök
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Frikkinn
Frikkinn

Winston Churchill ( 1874-1965. ) Smekkmaður á vindla og Wiskey.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband