Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, september 2008

Örugglega röng ákvörðun.

Er þetta ekki þá merki um örvæntingu eða veikleika að skifta um stýrimann á leið í land ? Við höfum dæmi um svona vitleysu hér heima, nefnilega þegar Guðrún Pétursdóttir dró framboð sitt til baka stuttu fyrir forsetakosningar, en það ku hafa verið gert svo framboð Péturs Kr Hafstein fengi meira pláss og yrði sigurstranglegra. Finnst bara sorglegt að svona mikið land eins og Bandaríkin eru skuli ekki eiga kost á betri mönnum í þetta embætti.
mbl.is Tekur Clinton við?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stjarnan okkar

Var að' koma af leiknum, þetta var svakalegt strögl hjá Stjörnustelpunum en það hafðist. Hélt á tímabili að Stjarnan yrði tekin í bakaríið á heimavelli en svo hrukku þær í gang. Frábært lið og gott gengi framundan
mbl.is Stjarnan knúði fram sigur gegn Val
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Helvíti á jörðu.

Svona segir meira en hægt er að ímynda sér. Einelti  getur átt sér stað allstaðar án þess að hafa birtingarmynd nema hjá þeim sem verður fyrir því. Það er  líka upplifun án þess að gerandinn geri sér grein fyrir því.
mbl.is Ætlaði að pynta þau og drepa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Með lausa skrúfu.

Greinilega ræktað garðinn vel sá gamli, kannske skrúlykilinn lent á röngum stað.
mbl.is 71 árs karl ófrískur?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dejlige Danmark ?

Gamla herraþjóðin skyldi þó ekki vera hverfa á vit sögunnar. Vaxandi minnhluti í eigin landi. Hvað skyldi vera langt í að forsætisráðherrann sé pakistani.
mbl.is Gæði sæðis slök
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Guð er mikill

En er það ekki dálítið fyndið að glenna rassboruna frekar framan í Allah frekar en að snúa að honum þegar múslimar hægja  sér. Það þykir að minnsta kosti dónaskapur í flestum vestrænum þjóðfélögum að glenna rassinn framan í guð og menn , en sinn er siðurinn í hverjum heimshluta.
mbl.is Ólympíusalernin snúi ekki að Mekka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góður biti í hundskjafti

Sorglegt fyrir piparsveinana, en það er enn von. Spái sambandinu ótímabæru andláti, og það fljótlega.


mbl.is Lindsay lengi verið lesbía
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að barma sér

Þetta er nú farið að ganga út í öfgar þykir mér. Hvern á að gleðja með aðgerðum sem þessum, ekki getur fólk flaggað þessu fram í alla eða varla lagar þetta sálarlífið til lengdar. Annars er svo sem furðulegt hvað fólki dettur í hug að gera, fyrir nokkrum árum var vinsælt í Hollywood að láta bleikja á sér brúna augað(rassgatið), og það fannst mér stórskrýtið fyrirbæri.
mbl.is Kynfæraaðgerðir vafasamar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott mál en taka skólarnir mark á því ?

Þetta er gott framtak og vonandi að skólastjórnendur taki við sér hvað blessuð börnin þurfa að burðast með. Dóttir mín sem er á tólfta ári er í Flataskóla og þar virðist skólastjórnendum standa á sama hvað töskurnar eru þungar, hún hefur ekki enn núna mánuði eftir að skólinn byrjaði fengið skýrt að vita hvað hún þarf að taka með sér af bókum daglega,  núna er  mottóið hjá skólanum að börnin geymi  bækurnar heima í stað þess að geyma þær í skólanum eins og var síðastliðin vetur, það er vízt verið að kenna þeim að bera ábyrgð og hún þarf að burðast með flest allar bækurnar tvisvar á dag í skólann og svo aftur heim. Með tilheyrandi eymslum og bakverkjum, þetta er til háborinnar skammar og ætti Skólastjórinn að sjá sóma sinn í að breyta þessu.
mbl.is Skólatöskudagar í grunnskólum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Frikkinn
Frikkinn

Winston Churchill ( 1874-1965. ) Smekkmaður á vindla og Wiskey.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband