Leita í fréttum mbl.is

Fjölnir ætti að biðjast afsökunar

Þessi ummæli hans eru stútfull af fordómum og virðingarleysi fyrir fólki sem þjáist af Alzheimer og aðstandendum þeirrra. Þýðir ekkert fyrir hann að segja að orð séu slitin úr samhengi. Fjölnir er persóna sem hleypir fjölmiðlum og almenningi að lífi sínu, og sem slíkur á hann að vanda orðaval sitt.
mbl.is Fjölnir segir Mel B líklega bara með alzheimer
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þekkt vandamál

Þetta er vízt þekkt vandamál í Rússlandi, þar gengur vízt sumum gömlum rauðliðum erfitt að skilja að þeir ráða ekki. Held að 'ihaldið ætti að fara í nafla skoðun
mbl.is Mögnuð fráhvarfseinkenni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kyn-leg stjórn

Ég er ekki alveg að kaupa samstarfið við Samfó. Sannfærður að það er óhreint mjöl í pokahorninu.

En kannske er ég með óráðshjal. Ekkert að Jóhönnu, en það eru meðreiðarsveinarnir úr hennar flokki sem ég er ekki sáttur við .


mbl.is Jóhönnustjórnin tekur við undir kvöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Málstaðurinn lifir

Það er dáldið merkilegt að enn skuli vera til menn sem eru tilbúnir að bana samborgurum sínum á þessum stað Evrópu. En kannske læra þeir sprengjugerð í brezka hernum enda ku írskir sjálboðliðar vera fjölmennir í Her Hennar Hátignar og skiftir þá engu hvort þeir eru frá Írska lýðveldinu eða N-Írlandi. Svo koma þeir heim og reyna bomba bretana fyrrum samherja sína.
mbl.is IRA skildi eftir sprengju við grunnskóla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

En hvað með Samfylkinguna ?

Skil ekki alveg hverju er verið að fagna , annar spillingaflokkana situr áfram að völdum og er orðin að einhvers konar Messías Íslenskra stjórnmála. Ef Samfylkingin á hrós skilið, þá spyr ég fyrir hvað ?

Ef viljinn hefði verið fyrir hendi hefði samstarfinu verið slitið strax, þeir eru tækifærissinnar af verstu sort. Sorry en ég trúi ekki á Jólasveininn.


mbl.is Sigurhátíð Radda fólksins á Austurvelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Framsókn ótrúlegt fyrirbæri

Þessum flokk tekst alltaf að koma sér í odda aðstöðu og ótrúlegt að einhver vilji styðast við hækjuna Sigmund Davið og félaga.

Þeir eru búnir að skapa sér einhverjar vinsældir hjá lýðnum samkvæmt könnunum með stuðningi við Samgræna. Vitið til í vor verða þeir komnir í ríkisstjórn og byrjaðir á plöntuganginum aftur   oj barasta


mbl.is Framsókn ver nýja stjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Konur og skór

Svo er talað um að konur séu með skódellu, Imelda Marcos sló víst öll met, átti 2000 pör ef mig minnir rétt.
mbl.is West á aðeins 450 skópör
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dýrðlegir tímar

Minnismerki um eitthvað sem margir fyrrum A-þjóðverjar sakna í dag, lök lífsgæði í austurhlutanum ku valda því.
mbl.is Ósnortin íbúð frá tímum kommúnistastjórnarinnar kemur í leitirnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gunnar og jólakökurnar

Alveg fáranleg þessi sauðstryggð við formanninn í VR, með öllu óskiljanlegt. Hvað veldur er ekki gott að segja en hræðsluáróður um þá sem vilja fá breytingar virkar oft á jólakökumaularana í trúnaðarráðinu. En þetta er alþekkt úr verkalýðsbaráttu að þeir sem eru valdhöfum ekki þóknanalegir skulu rakkaðir niður. Sorglegt á tímum þegar krafan er allt upp á borðið.
mbl.is Gunnar Páll fékk þorra atkvæða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Frikkinn
Frikkinn

Winston Churchill ( 1874-1965. ) Smekkmaður á vindla og Wiskey.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 136
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 108
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband