Leita í fréttum mbl.is

Mobbið í Kringlunni.

Þessi ágæti Formaður sem gerði í brækurnar verður endurkjörinn með stæl, vitiði til. Enda er samtryggingakerfið slíkt að erfitt er að ráða við það. Smölun af elliheimilum kemur sterklega til greina, nú svo má baktala menn út í hið óendanlega. Breiða út orðróm um eitthvað vafasamt úr lífsferli viðkomandi sem vogar sér að bjóða fram gegn sitjandi formanni. Nú svo nýtur formaðurinn þess að geta nýtt sér alla aðstöðu á skrifstofu VR og fjármagn úr sjóðum félagsins.

Mótframbjóðendur fá pottþétt ekki aðstöðu hjá félaginu , og þar tala ég af reynslu. Eðlilegast væri að ALLIR sem hyggjast bjóða í sig fram fengju sömu aðstöðu og tiltekna fjárhæð frá VR. Þyrftu með öðrum orðum að hafa fyrir því og núverandi formaður þar ekki undanskilinn. Persónulega fyndist mér að núverandi formaður ætti að sjá sóma sinn í klúðrinu, og ekki bjóða sig fram.


mbl.is Framboðsfrestur hjá VR framlengdur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Féhirðir gerist Dýralæknir

Já hvernig væri að hlusta á Raddir fólksins í landinu og segja af sér. Árni getur farið í dýralækningar enda þrælvanur að fjárvana bændur. Stattu þig gaflaradrengur.
mbl.is Krefjast afsagnar Árna Mathiesen
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alltaf í boltanum Hemmi minn.

Held að Hemmi minn eigi frekar að halda síg við England þó í neðri deildum sé. Tel það knattspyrnulegt sjálfsmorð að fara til Skotlands. Þar eru tvö félög Rangers og Celtics bæði frá Glasgow sem berjast um titilinn árlega þannig að spennan er frekar lítil. Reyndar er svipað uppi í Englandi 4-5 klúbbar sem berjast um toppsætin og hinir eru bara fyrir. Reading og Ipswich eru fínir klúbbar sem geta notið krafta Eyjapeyjans.
mbl.is Hermann orðaður við Rangers og tvö ensk 1. deildarlið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Byltingin að borða börnin sín ?

Hef skilning á því að búðareigandinn sé eitthvað spældur yfir grjótkastinu. En þessi frétt fær ótrúlega mikið pláss miðað við margt annað. Með öllu óskiljanlegt að konukindin skuli blanda þessu tvennu saman. En svona er þetta þegar maður vill einn ráða. Það er frekar veruleikafirrt að halda að þetta tengist, sorry sé ekki samhengið. Ég lít frekar á þetta sem kosnað þess að eiga húsnæði eða hafa rekstur í miðborginni . Svo getur hún alltaf farið í Hringrás með blýið og fengið aura fyrir það plús tryggingabætur...
mbl.is Ráðist gegn Nornabúðinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Grimmileg refsing.

Ætli fólk sé nokkuð að velta fyrir sér hvað felst í afhöfðun. Jú maðurinn missir höfuðið og lífið í leiðinni. En þetta er skelfileg miðaldaaðferð og ekki auðveld sjón býst ég við að verða vitni að, mikið blóðbað og sóðaskapur og hver þrífur upp eftirá varla fangaverðirnir ? En kannske böðulinn eða þeir sem bíða eftir samskonar meðferð. Dauðarefsing er ómannleg refsing hvernig sem á hana er litið, svo má deila um hvort þennan eða hinn eigi að afrétta.
mbl.is Tveir afhöfðaðir í Sádi Arabíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á að taka mark á skoðanakönnunum ?

Skoðanakönnun er náttúrulega einungis skoðanakönnun, og ef pólitíkusarnir tækju mark á þeim væru kosningar orðnar ansi þreytandi fyrirbæri, og svo er spurning hvort kannanir eigi rétt á sér

því þær geta virkað skoðanamyndandi.


mbl.is Ríkisstjórnin nýtur stuðnings 36% kjósenda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hún hlýtur að vera lesblind....

Hún fer greinilega mannavillt á Clooney greyinu. Og Clooney heldur að hann sé á Hilton ?
mbl.is Hilton og Clooney nýjasta parið?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Forseti í naflaskoðun.......

Eftirtektarvert hvað margir hafa skoðun á forseta vorum. Ýmist með eða á móti. Það minnir okkur á að betra er að vera umdeildur en óumdeildur... Haltu áfram  Ólafur,

.


Portkonur og pútnahús.

Þetta eru skrýtin lög. Má selja en ekki kaupa. Afhverju ekki að ganga alla leið og gera vændi ólöglegt með öllu. Framboðið skapar eftirspurn, svo það væri náttúrulega líka mögulegt að leyfa vændi  og setja upp  heilbrigðiseftirlit, læknisskoðun, opna með öðrum orðum pútnahús.


mbl.is Kaup á vændi orðin ólögleg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rauðir fánar dregnir niður ?

Það er með ólíkindum að kommúnismi lifi á þessu eyríki mitt í sólarparadís Karíbahafsins. Einn dag fá Kúbverjar frelsi, en Castro er engu að síður litríkur karakter , vindlaunnandi og kvennamaður, lagði meðal annars þekkta Bandaríska sjónvarpskonu, og  fór létt með að halda 4-5 tíma ræður og halda  athygli áheyrenda. Verður eflaust minnst sem mikilmennis sem er rétt að vissu marki.
mbl.is 50 ára byltingarafmæli á Kúbu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Frikkinn
Frikkinn

Winston Churchill ( 1874-1965. ) Smekkmaður á vindla og Wiskey.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 140
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 109
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband