Leita í fréttum mbl.is

Rauðir fánar dregnir niður ?

Það er með ólíkindum að kommúnismi lifi á þessu eyríki mitt í sólarparadís Karíbahafsins. Einn dag fá Kúbverjar frelsi, en Castro er engu að síður litríkur karakter , vindlaunnandi og kvennamaður, lagði meðal annars þekkta Bandaríska sjónvarpskonu, og  fór létt með að halda 4-5 tíma ræður og halda  athygli áheyrenda. Verður eflaust minnst sem mikilmennis sem er rétt að vissu marki.
mbl.is 50 ára byltingarafmæli á Kúbu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Morðæði Ísraela

Ekki geta Palestínumenn svarað af sömu hörkunni. Ímyndið ykkur hvað mundi gerast ef Palestínumenn dræpu háttsettan Ísraela............. úff manni dettur þá helst í hug að á Gaza-ströndinni yrði umhorfs eins og í Varsjá í stríðslok þegar Ísraelar hefðu lokið sér af. Skulum vona að vitsmunirnir yrðu ofar ofbeldinu
mbl.is Einn forystumanna Hamas féll
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Réttó alltaf góður

Gamli skólinn minn. Þó maður hafi verið ódæll þar gekk maður aldrei svo langt að mölva rúðurnar.
mbl.is 96 rúður brotnar í skólanum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heyr-heyr Ólafur

  Hann er greinilega meðvitaður um hlutverk sitt núna, lízt vel á að Ólafur heimsæki fólkið,  ekki gera stjórnvöld neitt til að róa þjóðina í landinu. Hugsa einungis um flokkshagsmuni og gæðingana sem töpuðu öllu......
mbl.is Þjóðarátak nýrrar sóknar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gleðilegt ár Íslendingar.

Alltaf gaman um áramót.  Greinilega minna skotið upp en oft áður, hvað um það púðurfýlan er góð  og tilheyrir
mbl.is Gleðilegt nýtt ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Arfaslakt skaup.

Skelfilega lélégt skaup og synd að kasta aurunum í svona kjaftæði í kreppu.

Púðurlykt og peningar..

Þá ættu skotmenn flugeldanna að geta tekið gleði sína og fretað í gríð og erg, með tilheyrandi hávaða og hvellum. Ok en alltaf finnst mér púðurlyktin góð og það sem ég sækist eftir . Ég féll á prinsippinu með að kaupa enga týrur þetta árið. Yngsta heimasætan mótmælti ákaft þangað ég gafst upp og fór með henni og "fjárfesti" í Traustapakka kr 13900, þannig að ég dró fram skotpall sem ég hannaði fyrir nokkrum árum og kom honum fyrir. Dáldið erfitt að standast tárin en alltaf gefst ég upp fyrir tárunum hennar.  Enda er gleði hennar mikil eins og liggur í augum uppi
mbl.is Gott flugeldaveður í kvöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fótaskortur á lyklaborði

Dálítið illa orðuð fyrirsögn, ég hef alltaf staðið í þeirri trú að sprengjuárásir séu alltaf banvænar. Varla er verið að sprengja blöðrur....
mbl.is Banvænar sprengjuárásir í Írak
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stútur á stökki.

Fínt smá hollusta í lok fylleríis .  En glæpurinn er afleitur, maður ekur ei eftir einn skamm-skamm.
mbl.is Ölvaður ökumaður hljóp heim til sín
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslensk tófa nei takk

Æ refur er eitthvað sem mann langar síðast í, hef smakkað lóu og spóa  en refur nei takk. Leyfi honum að vera skaðvaldur áfram.
mbl.is Gekk hægt að taka fyrsta bitann af refakjötinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Frikkinn
Frikkinn

Winston Churchill ( 1874-1965. ) Smekkmaður á vindla og Wiskey.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.9.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband