Leita í fréttum mbl.is

Hver vill ekki sjá snuddurnar ?

Alltaf er maður á röngum stað á röngum tíma þegar Pammy jammar. Nei svona fréttir þurfum við frekar en leiðindafréttir af sturluðum krökkum í Alþingishúsinu sem halda að þau búi í Þriðja-ríkinu.
mbl.is Erfitt að henda reiður á kossaflensi stjörnunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innköstin

Hennar alkunnu heljarstökk í innkastinu hafa örugglega fleytt henni langt inn á markað sænskra. Gangi henni vel .
mbl.is Ásta Árnadóttir á leið til Svíþjóðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kóng viljum við hafa. .

Þetta er ein af ástæðunum fyrir því að heppilegra væri að hafa konungdæmi hérlendis.Konungurinn  léti vaða yfir sig þegjandi og hljóðlaust, skrifaði undir hvað sem væri og héldi KJAFTI. Þá eru menn lausir við pólitískan þjóðhöfðingja, sem getur verið ágætt, þegar stjórnmálamennirnir fara offari gegn fólkinu í landinu.
mbl.is Forsetaembættið mótmælir frétt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lítið kallar á stórt.

Hún ætlar seint að læra að varast menn með myndavélar. Nema Pammy vilji hafa þá stóra,  hver veit.
mbl.is Aftur í eina sæng
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott á NATO

Mjög skiljanleg aðgerð hjá þessum skæruliðum, enda er Nato ekkert annað en hernámslið í Afganistan. Varla getur NATO réttlætt það að vera "frelsa" Afgana sem neita allra ráða við að losna við þá úr sínu landi. Skil ekki að ungir menn frá vestrænum þjóðum sjá mikinn tilgang í þessu stríði.
mbl.is Brenndu á annað hundrað flutningabíla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Norðmenn eru ágætir.

Það er mikið að  Oslóartréð  kemur loks að gagni fyrir almenning, fyrir utan að gleðja auga yngstu borgaranna , þá má um næstu helgi skrúfa perurnar úr og grýta í Alþingishúsið nú svo má saga greinarnar af og nota fyrir barefli. Já norðmenn eru ekki svo slæmir þegar allt kemur til alls, eða kannske erum við svona lengi að kveikja......eða með öðrum orðum bjóða þinginu upp á norskt saunabað.

 


mbl.is Ljósin kveikt á Óslóartrénu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég mótmæli.

Þetta er algjört glapræði hjá sveitastjórninni, þarna er nánast verið að gefa fyrirtaks gott hús. Þarna er fyrirtaks aðstaða til að halda allskyns fjölskyldu- og ættarmót, ekki spillir ægifagurt umhverfi. Við hliðina á skólanum er æðarvarp sem vert er að skoða en þó með varkárni enda mikið í húfi fyrir bóndann á staðnum. Ég mótmæli þessari sölu Strandabyggðar og skora á þá að bakka með þessa sölu enda örugglega hægt að fá betra verð en þarna fæst. Kúkur og kanill eru orðin um núverandi áform, frekar en að gefa húsið á 2,1 milljón hlýtur að fást einhver kaupandi sem er tilbúin að greiða skikkanlegt verð.
mbl.is Tilboði í Broddanesskóla tekið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Síðasti haukurinn

Lítið leggst nú fyrir Bush ef engir eru áheyrendurnir nema kalkúnar . Má ekki vista hann sömuleiðis í Disneylandi með kalkúnunum eftir valdaskiftin og þá sem síðasta haukinn.
mbl.is Náðar síðasta kalkúnann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flatkaka með hangikjöti.

Alltaf gaman að hlusta á karpið hjá landsfeðrunum, en að sama skapi ömurlegt að hlusta á málflutningin t.d í Ingibjörgu í þessum skrifuðum orðum. Hún er gjörsamlega búin að gera upp á bak, og maður hefur á tilfinningunni að hún sé að berjast við flokksbræður sína um leið. Vonandi að þessari ótugtarstjórn verði sparkað út úr stjórnarráðinu strax í kvöld. En takið eftir því að Björgvin er fjarverandi, sá sem vill kjósa , er að erinda fyrir Ingibjörgu, sendur í örugga fjarlægð svo hann ruggi ekki bátnum.  Sic manni verður flökurt á þessari matreiðslu .
mbl.is Hefur almenning ekki með sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í grjótið með þá

Lögbrjótar er eitthvað sem við þurfum ekki á að halda í baráttu við kerfið. Leyfum Saving Iceland glundrinu að dúsa inni, engin þörf fyrir þá við mómælin . Geta haldið sig við hálendið. Finnst það hráskinnaleikur hjá móðurinni að æsa fólk á fölskum forsendum.
mbl.is Var ekki látinn vita
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Frikkinn
Frikkinn

Winston Churchill ( 1874-1965. ) Smekkmaður á vindla og Wiskey.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 141
  • Frá upphafi: 203238

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 109
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband