Leita í fréttum mbl.is

Samantekin ráð hverra ?

Einhvern veginn finnst mér að það sé að undirlagi stjórnvalda sem löggan verði blóraböggull, reiðin beinist að lögreglunni en ekki stjórnvaldinu. Reyna að beina athyglinni að krakkakjána sem tilheyrir Saving Icelandhópnum, og þar með frá Alþingishúsinu og því sem það stendur fyrir . Ingibjörg Sólrún þykist ekki vilja kosningar en á eftir að koma eins og frelsandi engill og slíta stjórnarsamstarfinu, og kannske er hluti af því  orð hennar um VG til að koma í veg fyrir þann stjórnamöguleika. Nei kæru Íslendingar hér er þörf fyrir BYLTINGU, ef ekki friðsamlega þá tekur alþýðan málin í sínar hendur og hvað gerist þá ? Byltingu meina ég sem algeran uppskurð á þjóðfélaginu og draga menn til ábyrgðar. Það er vonandi að stjórnvöld gefi þjóðinni þá afmælisgjöf í 90 ára fullveldisafmælinu 1. Desember næstkomandi, rjúfa þing, boða kosningar, taka ábyrgð, og víkja sæti. Fara í algera naflaskoðun.
mbl.is Sagt frá mótmælunum erlendis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hundaskítur

Það er stórfínt að í Garðabæ. Og föðurleg hönd íhaldsins sér til að við höfum það gott. En þeir eru ekki að standa sig í að veita bæjarbúum aðhald með hundana sem eru fjölmargir hér í bæ. Meðfram öllum gangstígum er allt vaðandi í hundaskít og óþrifum. Ég er búin að fá nóg að skítnum þar sem ég bý , tek upp eftir 3-4 daglega, svörin sem ég fæ yfirleitt frá mínum ágætu samborgurum eru oftast á þá leið  að hafa "gleymt" að taka poka með. Kannske flottara að hafa eðalhund í hendinnni frekar en hundaskítspoka. Ábyrgð bæjaryfirvalda er augljós , enda hafa þau ekki viljað gera neitt hingað til þegar maður kvartar.


mbl.is Garðbæingar ánægðir með bæjarfélagið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eitt eista eitt líf.

Hvað eru menn að velta sér upp úr þessu, eflaust margir sem særðust verr en Adolf misstu t.d alla útlimina og sjónina  við Somme. Nú svo féllu þó nokkrir Íslendingar þar.
mbl.is Hitler hafði eitt eista
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sultuhundur ?

Mér er næst að halda að Anna litla Kournikova  eigi sultuhund og Enrique standist ekki samkeppnina, sé ekki eins tungulipur. Þó hann syngi dável.
mbl.is Hent út vegna hundsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Raunir brúðgumans

Eru þá ekki allir ánægðir. Þau eru enn hjón, trekkspjaldið var ekki í, hún hafði sofið hjá öðrum áður. En ekkert spurt um fyrra ástarlíf brúðgumans. Já ástarlífið tekur stundum á sig skrýtnar myndir.
mbl.is Jómfrúrdómur ógildur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skallagrím sem forsætisráðherra já takk.

Aldrei þessu vant held ég að Steingrímur hafi rétt fyrir sér í þessu máli. Uppgjöf var og er niðurstaðan í Icesave-málinu og eflaust fáum við harkalega lendingu í því, þökk sé Haarde og Hárlausu konunni. Vinstri á móti hafa hafa oft verið gagnrýndir fyrir að vera á móti öllu og er það vel. En ég sting upp á Steingrími J S í fúlustu alvöru sem "stríðs"forsætisráðherra sem mun leiða þjóðina í gegnum þrengingarnar, síðan   getum við hent honum á ruslahaug sögunnar þegar það versta er yfirstaðið. Slíkir karakterar eru yfirleitt ekki vinsælir við venjulegar aðstæður, en það eru ekkert venjulegar aðstæður í augnablikinu. Hann hefur gæddur öllum þeim eiginleikum sem slíkur ráðherra þarf að vera, staður, þrasgjarn og lætur ekki valtra yfir sig, nú svo er maðurinn afburða mælskur og sennilega engin núverandi þingmaður sem kemst með tærnar þar sem hann hefur hælana.
mbl.is Lengi getur vont versnað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Annað hvert ár .

Skemmtilegt sjónvarpsefni þegar snobbliðið hristir demantana. Nei agætis tenging við Óskarinn,  en mér þætti vænlegra að halda Edduna á 2 ára fresti, þéttleikinn er of mikill árlega. Of fáir að keppa um verðlaun.  Á tveggja ára fresti væri samkeppnin vonandi meiri og  hnossið dreifíst meira. En endilega halda áfram ekki veitir af.
mbl.is Hverjir hljóta Edduna í ár?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Við höfum engu að tapa. Allt að vinna

Akkúrat það sem við þurfum EKKI. Ekki flokk sem hugsar með klaufunum. Heldur vantar verkalýðssinnaðan flokk sem hefur hagsmuni alls vinnandi fólks að leiðarljósi og er ekki smitaður af brottgengum pólitíkusum sem fórna öllu fyrir gott sæti fyrir sjálfa sig. Nei hér vantar flokk sem berst fyrir okkur sem höldum þessu þjóðfélagi uppistandandi, flokk sem ætlar sér að ná áhrifum og vera marktækur fulltrúi verkalýðs í landinu á Alþingi, ekki gera núverandi verkalýðsforingjar neitt fyrir okkur sem viljum breytingar. Skiftir engu hvað hann er kallaður, sósalistar, kommar, þjóðernissinnar, sjálfstæðismenn, frjálslyndir,  við þurfum breiðsíðu vinnandi fólks, ekki blýantsnagara sem brugðust.  
mbl.is Framfaraflokkurinn stofnaður á næstu dögum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kate alltaf sæt.

Hún hefur þessa klassísku fegurð, og gott hjá henni að koma til dyranna eins og hún er "klædd". Kona sem er sátt við sjálfa sig.
mbl.is Winslet trúir ekki á fullkomnun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lúðvik XIV klikkar ekki

Seigur sveppur Sarkozy, alltaf með kjaftinn á réttum stað.

Franskur fram í fingurgóma.


mbl.is Sarkozy hrósar sér en hnýtir í Bush
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Frikkinn
Frikkinn

Winston Churchill ( 1874-1965. ) Smekkmaður á vindla og Wiskey.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 141
  • Frá upphafi: 203238

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 109
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband