Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Er forsætisráðherrann huglaus ?

 Hérna á Geir Haarde að segja stopp, enga Breta takk .   Setja þrýsting á málið innan Nato.

Trúi nú varla að hann sé að spá í hvað Sámi frænda finnst fyrir westan og vilji ekki styggja hann.


mbl.is Vill ekki Bretana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kemur ekki á óvart.

Þetta er dálítið sem ég hef smá áhyggjur, að þetta eigi eftir að breiðast út. Stjórnendum, millistjórnendum og fleirum verði á næstu mánuðum boðin launalækkun til að halda stöðum sínum, eða verði sagt uppað öðrum kosti.  
mbl.is Boðin launalækkun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fáninn okkar

Þetta er þjóðráð, og gæti þjappað fólki saman. Skora á alla landsmenn að gera slíkt hið sama. Ég ætla flagga framvegis alla daga sem færi gefst. . Fáninn er sameiningartáknið okkar og eflir vonandi stoltið og tilfinninguna að vera Íslendingur.


mbl.is Þjóðerniskennd efld á bensínafgreiðslustöðvum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Keep out Mr Gordon Brown

Gordon Brown er greinilega ekki ljóst að við ÍSLENDINGAR höfum fengist við brezka ljónið áður og alltaf haft sigur. Blessuðum manninum er máske vorkunn að hafa ekki betri söguþekkingu. Megi fall hans verða jafn hratt íslenzku krónunni  Amen .
mbl.is „Sparkað í liggjandi (Ís)land"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mín frábæra þjóð Íslendingar

Eigum við ekki að skrifa um eitthvað gleðilegra en um eintómar harmafregnir af efnahagsþrengingum. Eitthvað fagurt og uppbyggjandi úr mannlífinu, eitthvað um gleðina, börnin sem við eigum, eða annað skemmtilegt, eitthvað sem fær okkur til að hugsa um eitthvað annað en gráan ömurleikann, fær okkur til að brosa og munum ÞAÐ ERU AÐ KOMA J'OL BRÁÐUM. Kær kveðja til allra minna ágætu landsmanna.
mbl.is Ráðstafanir gerðar vegna peningamarkaðssjóða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lúðvík XIV nútímans.

Sarkozy er nú ekki kallaður Lúðvík XIV fyrir ekki neitt enda vilja Frakkar hafa eitthvað að segja í EU sem mótvægi við grannann Þýskaland. Hann er flottur, frekur og ráðríkur  karl sem vill ráða á stjórnarheimilinu og má það svo sem. Sonur innflytjanda og stoltur af því.
mbl.is Einleikur Frakka gagnrýndur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gruggug umræða.....

Einhvern veginn finnst mér áherslan á að sparnaður landsmanna haldist vera til að róa fólk og það eigi eitthvað eftir að gerast óvænt  í þeim málum. Annað hvort gufi hann upp eða almenningur fái ekki aurana greidda nema eitthvað takmarkað. Ég treysti þessari umræðu ekki því miður.
mbl.is Fororðið að tryggja sparnað landsmanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er hún siðblind ?

Nú er ég hlessa, veit ekki betur en sð hún sé sjálf í slagtogi með hryðjuverkamönnum. Flokksbróðir hennar réðst inn í tvö lönd og er að fórna bandarískum mannslífum á grundvelli lygaþvælu. Innrás inn í annað land er ekkert annað en hryðjuverkaárás og skiftir engu hvernig menn fóðra það eða réttlæta.
mbl.is Palin ræðst á Obama
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Okurbúllan Bónus

Engin furða að Bónusmenn eru að reyna græða í kreppunni, fór að verzla þar á miðvikudag og sumar eða næstum allar kjötvörur höfðu hækkað um 25 prósent. Þeir eru hreinlega orðnir dýrari en Fjarðarkaup. Talsmenn litla mannsins ero orðnir talsmenn mangara og ég segi bara við þá .................. skamm..skammm Jóhannes og félagar svona gera menn ekki
mbl.is Ótti gripur um sig
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Frikkinn
Frikkinn

Winston Churchill ( 1874-1965. ) Smekkmaður á vindla og Wiskey.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband