Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Sorglegt dæmi um spillingu.

Enn eitt dæmið um spillingu þeirra sem þykjast vera "verkalýðsforingjar" . Sitja báðum megin borðsins, velta sér upp úr peningunum okkar sem við greiðum í fitnandi sjóði. Að manngreyið hafi viðurkennt mistök er ekki nægjanlegt. Hann á að sýna manndóm og axla ábyrgð, og víkja. Hann er sorglegt dæmi hvernig flokkarnir skiftu á sínum tíma verkalýðsfélögunum á milli sín á sínum tíma . Sjálfstæðismenn hafa alltaf ráðið innan VR og engin breyting sjáanleg á þeim bænum. Þessi ágæti maður var handvalinn af fyrirrennara sínum til að taumarnir lægu réttu megin, en vonandi hefur hann vit á að hætta  og sýna fordæmi. En það er svo dýrðlegt að drottna að það er hæpið því miður.
mbl.is Vilja stjórn VR burt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þegar ég kemst að...................

Þá byrja gæðingarnir að bíta í kökuna, og bitlinga sig og sína. Svona eru allir pólitíkusar, skiftir engu hvort þeir heita Geir, Obama, Brown  eða Mugabe. Allir eru þeir handbendi afla sem vilja komast að. Að mínu mati er þessi gaur Obama  í Vorsatúni bara enn einn ameríkaninn sem er hættulegur umheiminum og umhverfinu. Endurtek þá skoðun mína að það er sorglegt að stórt land eins og BNA skuli ekki eiga frambærilegri kandidata en þennan mann. Það er enginn maður fólksins til og alls ekki í stjórnmálum,  hann er einungis lýðskrumari og ekkert annað. Sorry ágætu íslendingar en ég sé ekkert gott við hann.

.


mbl.is Obama byrjaður að raða í embætti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Grípum geirinn í hönd ll

Nú verður Geir að sýna festu og taka málið upp innan Nato. Þar er væntanlega önnur pólitík í gangi. Hann hefur flotið fram og aftur undanfarið, núna er stóra tækifærið . Hóta til t.d úrsögn úr Nato.
mbl.is IMF-beiðni frestað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Burt með þremenningaklíkuna ......

Við viljum kosningar STRAX. Nýtt fólk til að stýra þjóðinni gegnum ólgusjóinn og enga flokkshagsmuni í fyrirrúmi. Þegar örvæntingin eykst meðal almennings er viðbúið að það fjölgi í mótmælunum og þá fyrst verður fjör á Austurvelli. Og hvað ætla þeir að gera þá ?


mbl.is Mótmæli vekja athygli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Grípum geirinn í hönd

Margra ára misrétti og misskifting auðs í landinu er undirrót ólgunnar í fólki. Þegar atvinnuleysið eykst og örvæntingin grípur marga er stutt í að hér geti hugsanlega skapast franskt ástand. Skyldi svo sem engan furða. Algjört ráðaleysi  ríkisvaldsins.  Glansmyndin var prjál og fals, auðkýfingar ulla á okkur sem situm eftir í skítnum. Spái ókyrrð og óróa á næstu mánuðum og sérstaklega upp úr áramótum. Minni á eldfimt ástand í kjaramálum, brostnar vonir, kaupmáttarskerðingu upp á kannske 20-30 prósent sem er eitthvað sem kemur við fjárhag heimilanna í landinu.   Við verðum að rísa upp á fæturnar og minna ráðamenn á okkur. Látum ekki leiða okkur beint á höggstokkinn eins og viljalausir sauðir, af misvitrum pólitíkusum sem hugsa meira um flokkshag en þjóðarhag.
mbl.is Húsfyllir í Iðnó - hiti í fundargestum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Litli risinn rumskar.

Sammála Skallagrími og félögum. Enga breta hér takk. Gera Nato ljóst að úrsögn kæmi til greina ef yfirganginum linni ekki. Sýna klærnar eftir að BNA kom aftan að okkur og lokaði Keflavíkurstöðinni einhliða. Þetta er stóra tækifærið okkar að sýna hvað er í okkur spunnið innan Nato og alþjóðavettvangi. Kannske smámál í augum summra innan Nato , en engu að síður gott tækifæri. Ekki láta taka sig aftur aftanfrá og ekki gefa þumlung eftir.
mbl.is VG vill ekki gæslu Breta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Klíkuskapur hjá ASÍ

Þá er eiginhagsmunahópnum létt. Völdin í tryggum höndum næstu árin. Það var svo sem engin hætta á ferðum, bæði innvígð í klíkuna. Hægt að velta sér upp úr peningum hins vinnandi manns sem hefur laun sem nema einungis broti af kjörum forystunnar. Það gefur augaleið að þessir menn væru ekki þarna inni nema til að hafa eitthvað út úr því (minnir á bankastjóranna). Þvergirt fyrir að almúginn komist inn með tærnar að nauðsynjalausu. Gæti verið fróðlegt fyrir okkur sem höldum þessu bákni upp að fá að vita  hvað forystusauðirnir hafa í laun kannske ákveða þeir það sjálfir (minnir á Alþingismenn). Enda er ekkert skrýtið að þeir semji um smánarlaun handa umbjóðendum sínum. Þeir hafa engan skilning á lífskjörum okkar hinna, eru ekkert nema "skrifstofuverkamenn" sem hafa sumir hverjir aldrei dýft hendi í kalt vatn. Skamm skamm.
mbl.is Gylfi nýr forseti ASÍ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rotturnar flýja

Maður fær æluna upp í háls. Þvílíkt siðferði hjá þessum pjésum. Voga sér að taka í spaðann á starfsfólkinu og brosa mannskítsglotti.  Millurnar örugglega velfaldar á Bahamas eða Sviss eða eitthvað álíka. Búnir að skíta upp á háls og ætla sér að komast upp með það vegna þess að flokksbræður þeirra ráða í stjórnkerfinu. Ættu að sjá sóma sinn í að skila auurunum sem þeir fengu fyrir ekki neitt. Æ fyrirgefiði, þeir þurfa vízt einhverja aura til að lifa af. Greyin litlu.
mbl.is Hreiðar Már yfirgefur Kaupþing
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ritskoðuð fréttamennska.

Þetta er vilhöll fréttamennska á háu stigi. Talibanar myrða , bandaríkjamenn drepa. Hver er munurinn . Enginn raunverulaga nema orðalagið. Orðið myrða hefur neikvæða merkingu, hinu að drepa  má snúa í allar áttir.
mbl.is Talibanar myrtu tugi manna í Afganistan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Frikkinn
Frikkinn

Winston Churchill ( 1874-1965. ) Smekkmaður á vindla og Wiskey.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband