Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Og olían hækkar og hækkar......

Enn og aftur er það olían sem þarf að vernda. Konunglegi sjóherinn fær eflaust það verkefni, enda klæjar þá örugglega í lófana að fá alvöru verkefni. Þeir hafa að mestu setið hjá á meðan landherinn er að berjast í Írak og Afganistan. Ætli heimsmarkaðsverð á olíu hækki ekki talsvert í kjölfarið og allir græða nema almenningur á vesturlöndum. Meðan vestrænt blóð rennur, streymir ofsgróðinn í vasa olíufursanna sem klappa saman lófunum í kæti yfir enn meiri krónum inn á  bankareikninganna. Þarna er verið að styðja við bakið á gerspilltri ríkisstjórn sem stendur í ættbálka stríði á kosnað neytenda á vesturlöndum. Ömurlegt hvað stjórnmálamenn láta stjórnast af hentugleika líðandi stundar í stað þess að hugsa til framtíðar
mbl.is Bretar lofa aðstoð í baráttu við uppreisnarmenn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver ógnar hverjum.

Ísraelar  mega gera allt því stóri bróðir í Vorsatúni(Washington) bakkar þá alltaf upp sama hvað þeir troða á nágrönnum sínum, og hvernig þeir þverbrjóta mannréttindi á palestínuaröbum. Múrinn sem umlykur palestínumenn er eitthvað sem maður skyldi ætla að gyðingar vildu ekki að aðrir þyrftu að búa við, saman ber reynslu þeirra sjálfra  í gettóum nasista. Ekki vorkenni ég ísraelum að búa við ógn af Írönum því þeir kúga og níðast sjálfir miskunarlaust á nágrannaþjóðum sínum ef þeim finnst sér ógnað. Því ætti ekki að koma á óvart að einhverjir vilji þá feiga.


mbl.is Ísraelar við öllu búnir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Everybody loves good neighbours

Þetta er svakalega villandi fyrirsögn. Þessar nágrannaskærur eru sko engar venjulegar skærur heldur hápólitískt og viðkvæmt deiluefni. Þarna er ekki rifist um tré og runna , heldur er  Kasmír-héraði  skift samjvæmt vopnahléssamningi, og báðir aðilar vilja hafa sitt fram og sér ekki fyrir endann um lausn og verður sjálfsagt "sagan endalausa".
mbl.is Skærur á milli granna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Farísear í mótmælastöðu

Þetta mál er stútfullt að hræsni af þessu ágæta fólki sem hefur hæst út af máli Paul Ramses. Væri ekki nær lagi að ganga í mál fólks sem hefur beðið á þriðja ár eftir hæli, frekar en máli P.R sem hefur dvalið hér í örfáa mánuði. Hælisleitendur í Reykjanesbæ eru sumir hverjir fjölskyldufólk og motmælendum í Reykjavík dettur ekki í hug að lyfta litla putta til hjálpar þessu fólki, eða að biðja um forgangsmeðferð í þeirra málum.  Paul Ramses á fullan rétt á að mál hans sé skoðað en þá getur hann farið í röðina eins og hinir.


mbl.is Kæru skilað til dómsmálaráðherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vertu bara í fýlu.

Skiftir það nokkru hvoru megin hún er, hún er sjálf flóttamaður frá Vinstri grænum. Og rekst greinilega illa í flokki.
mbl.is Í stjórnarandstöðu nema Ramses komi aftur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í djúpum skít.

Það er fínt að kananum finnst við hæfi að nefna skolphreinsun  eftir Bush, enda er hann stærsta rassgat og ógnun við heimsfriðinn sem hefur setið á valdastóli síðan nasisminn leið undir lok. Þá geta íbúar S.F hugsað til hans um leið og þeir hægja sér.
mbl.is George W. Bush skolphreinsistöðin?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óþarfa viðkvæmni.

Eru svona söfn hvort eð er ekki með fullt af styttum af hinum ýmsu góðmennum og illmennum sögunar og þá finnst mér ekki skifta máli að bæta einum sauðnum við. Stalín og Maó voru ekki beinlínis þekktir að góðmennsku nema að hafa vera réttu megin í lok sinni heimstyrjaldar hafi aflað þeim rétt til að vera þarna inni. Það hlakkar eflaust í A.H nú í neðra að menn skuli enn vera rífast yfir honum. En eins og einn verkalýðsforingi hér heima sagði einu sinni, þá er betra að vera umdeildur en óumdeildur.
mbl.is Óvíst um örlög Hitlers
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gasmaðurinn mætir

Og löggan bíður örugglega í ofvæni að prófa nýja gastegund, svo allir að mæta í Arnarhvál. En spauglaust er þetta alltof lítið tilefni til að vorkenna manngreyinu, stjórnvaldið myndi aldrei senda hann til síns heima ef hann ætti á hættu að vera drepin. Og svo eru það bara hans orð fyrir því.
mbl.is Mótmæli skipulögð fyrir utan dómsmálaráðuneytið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skiftir þjóðerni máli í Haag ?

Einhvern veginn finnst manni að þarna sé verið að draga stríðsaðila í dilka. Serbar voru vondu kallarnir og Bosníu-múslimar fórnarlömbin. Held að Naser Iric hefði ekki verið sleppt ef hann væri serbi.
mbl.is Dómur stríðsglæpadómstóls felldur úr gildi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Adolf brosti líka.

Hvað er athugavert við það að Adolf hafi haft smá húmor, varla hefur hann framleitt varaskeifur ævilangt. Það eru til margar myndir af honum brosandi út í bæði. Stalín kunni  líka að brosa og eru nú allflestir sammála að morðæði hans var margfalt verra en hjá A.H
mbl.is Umdeild kímnigáfa Hitlers
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Frikkinn
Frikkinn

Winston Churchill ( 1874-1965. ) Smekkmaður á vindla og Wiskey.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband