Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Dægurmál

Bobby Fischer goes to war..

Ég var pjakkur þegar einvígið fræga fór fram og fór 1-2 að sjá kappana tefla, og var það ógleymanlegt, mikil stemming og skynjaði maður vel spennuna í kringum einvígið,kalda stríðið við skákborðið í algleymingi.  Bobby bjó í svo kölluði DAS-húsi sem var í Vogalandinu í Reykjavík minnir númer ellefu, ég átti heima þarna rétt hjá,og þvældist oft í kringum húsið í von um að sjá Bobby, alltaf var hópur fólks við húsið að reyna sjá hann,fréttamenn , krakkar og allskonar fólk.  Mér er það minnisstætt að hann kom oft á fleygiferð út úr húsinu og yrti varla á nokkurn mann eða það minnir mig og stökk inn í bíl sem beið hans. En einum vini mínum tókst að komast að honum dag nokkurn, þegar það var fámennt eitt skiftið við húsið, talaði við hann og fékk eiginhandaráritun frá Bobby og lifði lengi á því.


mbl.is
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að virða röðina.

þetta er eitthvað sem mætti kenna íslendingum, en ég er ekki sammála þessu með innflytjendur. Þeir eru stór hluti viðskiftavina á mínum vinnustað og eru nánast undantekningalaust kurteisari en okkar kæru landar.

mbl.is Vill kenna innflytjendum að standa í biðröðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

VAR VOFFINN MÁLIÐ

Óneitanlega hvarflar að manni að hundinn hafi vantað félagsskap.

mbl.is Saman á ný?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Var það fullkomið morð ?

Er þetta ekki dæmigerður amerískur lögfræðingur, kann alla klæki og ósvifni. Eflaust fróðlegt engu að síður fyrir þá sem ganga með amerísk lögfræðidrama í maganum. Ég er þeirrar skoðunar að vörn hans fyrir Simpson hafi verið vafasöm og réttlætið ekki náð fram að ganga. Ekki betri er vörnin fyrir mannætuna Tyson, hann lenti þó í grjótinu . Veit ekki hvort Derschowitz hafi varið hann þá ?
mbl.is Verjandi O.J. Simpson með námskeið á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

FORSETINN OKKAR:

Hann hefur staðið sig þrælvel að mínu mati og má mín vegna sitja þangað til hann fer á eftirlaun. Það er betra að vera umdeildur en óumdeildur. Gott að Forsetinn taki þátt í þjóðfélagsumræðunni og bakkupp fyrir þjóðina að vita að Forsetinn tjáir sig um málefnin.
mbl.is 86% styðja Ólaf Ragnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afríka cops.

Frakkar hafa frá því nýlendutímanum lauk gætt hagsmuna sinna og ríkisborgara með hersetu í mörgum Afríkulöndum, og oftar enn ekki blandast inn í innanlandsátök t.d á Fílabeinsströndinni Kongó og víðar,já og íChad . Þar er ein stærsta herstöð þeirra utan heimalandsins þ.e Chad, og hafa Frakkar oft verið kallaðir Africa cops.
mbl.is Frakkar senda liðsauka til Tsjad
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Killer á sviðinu

Úff, ekki leiðum að herma. Freddie Mercury var alveg hrikalega mikill köggull, ótrúleg sviðsframkoma aflaði honum mikilla vinsælda og engin getur nokkurn tímann toppað hann. Magni verður að fá framgóm til að líkjast goðinu og raka hökutoppinn af.


mbl.is Magni í hlutverk Freddy Mercury
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dreams come true

Mér þykir þau alltaf svo stórkostlegt tvíeyki, bæði stórbrotnir karakterar og hrikalega ólík í viðtölum, Jón með þetta óþolandi sjálfstraust og Brynka alltaf barnslega einlæg. Já frábær í einu orði sagt.
mbl.is Jón Baldvin og Bryndís Schram láta gamlan draum rætast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þurfti hann að skrifta ?

Karl greyið, en pottþétt ekki gaman að hafa verið farþegi í vélinni. En óneitanlega skondið atvik.
mbl.is Flugmaður fékk taugaáfall í flugi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stöngin út ?

Er það ekki málið að á Íslandi má allt nema það sé bannað, en í útlöndum er allt bannað nema það sé sérstaklega leyft. Það er  einhver hálfvelgja í þessu frumvarpi, af hverju ekki að ganga alla leið og gera refsivert bæði eftirspurn og framboð, þetta tvennt hlýtur að haldast í hendur. Ég veit ekki hvað er verið að reyna gera með þessu frumvarpi, gera vændiskaupandann sekan en sleppa þeim sem selur  ? Á að gera þann sem kaupir dóp sekan en sleppa þeim sem selur ? Hvað varðar súlustaði held ég að breyti engu hvort þeim sé lokað eður ei , starfsemin fer þá bara undir yfirborðið og þá með óæskilegum afleiðingum.
mbl.is Vilja banna nektarsýningar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Frikkinn
Frikkinn

Winston Churchill ( 1874-1965. ) Smekkmaður á vindla og Wiskey.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.9.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 11
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband