Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Dægurmál

"GAY" ?

Ef eitthvað er að marka fyrirsögnina ættu siðgæðispostular landsins að rjúka upp til handa og fóta manninum til varnar. Þetta er alveg svakalega villandi fyrirsögn.LoL
mbl.is Jónsi kom út úr skápnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hræsni

Mér finnst að aumingja fólkið ætti að finna sér eitthvað þarfara að gera en að mótmæla dýraveiðum, næg eru þjóðfélagsvandamálin fyrir t.d atvinnuleysi, fátækt, lág  laun og mikið misrétti. Það er líka auðvelt fyrir svona samtök, þ.e dýraverndunarsamtök  að hafa áhrif á stefnulausa iðjuleysingja, iðjuleysingja sem lifa fyrir einn dag í einu og eiga enga von um betra líf. Þetta er sambærilegt við leit hryðuverkahópa að nýjum meðlimum.  Það eru svona hópar sem hafa eyðilagt lífsafkomu fólks í jaðarþjóðfélögum, t.d á Grænlandi og í Alaska.
mbl.is Nekt gegn loðfeldum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

WW1

Þessi styrjöld er einhvern veginn lengst aftur í forneskju finnst manni, og maður verður hálfundrandi þegar maður les svona frétt, en örugglega áhugavert fyrir sögufíkla.


mbl.is Síðasti þýski hermaðurinn úr fyrri heimsstyrjöld látinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gullasnar borgarinnar

Jahá,  ekkert pælt í að spara þega stólarnir eru annarsvegar ha......Ráðslagast með fé skattgreiðenda til að hafa mjúkt undir rassinum. Skammist ykkar strákar........Djö........    er ég feginn að búa ekki í Víkinni.
mbl.is Þrír þiggja laun borgarstjóra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Beðmál í borginni

Ótrúlegar fréttir af brotthlaupi Ólafs fyrir sætleika valdanna og maður veltir fyrir sér hvort veikindi hans spili inn í . Ok en það var eftirtektarvert á blaðamannafundinum að Vilhjálmur reyndi að þagga niður í Ólaf eins og hann óttaðist að eitthvað vanhuxað slyppi út úr honum. En Degi tókst gríðarlega vel upp í viðtalinu á eftir  og kom manni gríðarlega á óvart með stóískri ró. En ekki var Ólafur trúverðugur í sjónvarpinu, og greinilegt að Sigmar trúði honum ekki, enda maðurinn bersýnilega að segja ósatt. En mikið verður gaman að fylgjast með næstu sveitarstjórnarkosningum í Víkinni, og leðjuaustrinum sem fylgir.

Robert James Fischer........ in memorian

Furðulegt að láta sér detta í hug að grafa hann á Þingvöllum eins og hann hafi verið einhver þjóðhetja. Ef RJF hópurinn vill minnast hans og reisa honum einhvern minnisvarða við hæfi,  fyndist mér nær lagi að grafa Bobby Fischer í gamla kirkjugarðinum við Suðurgötu, þar í nálægð við miðbæinn,  í gömlum og virðulegum kirkjugarði gæti grafreitur verið aðdráttarafl fyrir túrista, nú eða þá sem koma í pílagrímsferð að gröf meistarans. Hægt væri að koma upp leiðarvísi að gröfinni. Þetta er sambærilegt við grafir annara kunnra manna  sem hvíla í kirkjugörðum erlendis t.d Jim Morrison. Það hlýtur að vera hægt að koma því við þó þröngt sé orðið í gamla Suðurgötukirkjugarðinum, ég skora á þá Kirkjugarða Reykjavíkur að skoða málið.


Farðu.........

Mér þykir það bara ágætt að hann fari úr frammarafélaginu,  ef hann þolir ekki gagnrýni úr eigin röðum. Það virðist vera að allir sem rekist illa í flokki endi í Frjálslynda flokknum eða Samfylkingunni. Kannske eiga orð Olivers Cromwells vel við ,,Of lengi hefur þú setið hér án þess að láta gott af þér leiða. Farðu,  segi ég, og láttu okkur vera lausa við þig. Í guðs nafni, farðu!".
mbl.is Björn Ingi úr Framsóknarflokki?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samfélagsþjónusta

84 mínútur í fangelsi er bara kjaftæði, en vá prímadonnan í samfélagsþjónustu í líkhúsi. Ég skora á dómstóla landsins að taka upp óvenjulegar refsingar í  staðinn fyrir fangelsisvist  t.d  að sópa miðbæinn eftir helgarnar, taka vaktir á núllinu nú svo mætti nota gapastokk á góðviðrisdögum. Ætli viðhorfið væri ekki fljótt að breytast hjá fólki sem lenti í svoleiðis . Annars held ég að dómar hjá bandarískum dómurum  séu ekki til eftirbreytni allaveganna því sem snýr að samfélagsþjónustu .
mbl.is Lindsey Lohan í líkhúsið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skrambans svíarnir

Þetta eru skelfileg úrslit, algjört hrun í seinni hlutanum. Alfreð hlýtur að eiga eitthvað upp í erminni upp á framhaldið, ég kalla eftir leynivopninu sem talað var um.
mbl.is Svíar sigruðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þvæla

Einu sinni var í Giessen velþekkt geðsjúkrahús, félagsmálayfirvöld þar vilja máske forðast mistök fortíðar ? Þetta getur ekki verið satt í alvörunni , Síbería var fangelsi keisarans og rauðu herranna , en ekki á árinu 2008. Hver er svo ómennskur að taka unglinga í þrælavist ?
mbl.is Unglingur sendur í betrunarvist til Síberíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Frikkinn
Frikkinn

Winston Churchill ( 1874-1965. ) Smekkmaður á vindla og Wiskey.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.9.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 11
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband