5.10.2008 | 22:25
H.M.S Hood (in memorian)
Sagan er skrýtið fyrirbæri, þegar svona frétt er lesin verður sagan svo ljóslifandi og löngu liðnir atburðir rifjast upp. Merkilegt hvernig menn upplifa atburðina Briggs fannst hann einungis hafa lifað af á meðan aðrir töldu hann hetju. Hood hét eftir frægum flotaforingja á átjándu öld og var stolt brezka flotans og sigldi umhverfis heiminn í heimsóknir hingað og þangað. Þegar seinna stríð skall á var brezku flotastjórninni vel ljóst að skipið var orðið úrelt og myndi ekki standast þýsku orrustuskipum snúning, en samt var það sent í veg fyrir Bismarck og því fór sem fór. Skipið tók þátt í árás á franska flotann í N-Afríku 1940 í kjölfar hrun Frakklands og var það að ég held eina aðgerðin sem það tók þátt í fyrir utan slaginn við Bismarck.
Síðasti sjóliðinn af HMS Hood látinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 169
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 144
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Desember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- Maí 2020
- Mars 2020
- Janúar 2020
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Október 2018
- September 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- Ágúst 2016
- Júní 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- September 2014
- Ágúst 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Júlí 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Október 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Mars 2011
- Janúar 2011
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
Bloggvinir
Tenglar
Mínir tenglar
Af mbl.is
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Athugasemdir
H.M.S HOOD.
25 oktober næstkomandi verð ég í Englandi til að vera viðstaddur afhjúpun minnismerkis um Hood og þá sem fórust með því. Því miður barst mér skeyti í gærmorgunn frá stjórn HMS Hood Association að vinur minn Ted Briggs hefði látist á laugardaginn eftir skamma sjúkrahúsvist. Því miður verða verða Englandsferðir mínar því tvær því ég mun fylgja honum til grafar.
Ted var hæglátur maður og mjög viðkunnalegur og það var ekki annað hægt en að láta sér þykja vænt um hann. Hann hafði sig lítið í frammi hin síðustu ár og vildi frið fyrir fjölmiðlum. Alllt frá árinu 1975 höfum við í samtökunum komið saman á þeim laugardegi sem næstur er 24 maí, þeim degi sem Hood var sökkt, haldið aðalfund og snætt kvöldverð. Morguninn eftir höfum við gengið til kirkju þar sem minningaratöfn fer fram um þá sem fórust með Hood. Undirritaður var þess heiður aðnjótandi að fylgja Ted til kirkju í maí síðastliðinn. Við ætluðum að hittast næst nú í oktober við afhjúpun minnismerkisins. Margs misskilning hefur gætt varðandi Hood og baráttuna við Bismarck. Ég ætla nú ekki að fara út í smáatriði hér, en Hood stóðst Bismarck fyllilega snúning þó gamall væri orðin. Vissulega var brynvörn Hood ekki mikil á þilfari en það var gert til að skipið yrði léttara og hraðskreiðara. Að öllu öðru leiti var brynvörn skipanna sambærileg. Auk þess var Hood hraðskreiðari og búinn aflmeiri vélum en Bismarck.
Vilji menn fræðast frekar um Hood þá bendi ég þeim á að lesa grein mína um skipið sem birtist í Morgunblaðinu 25 maí síðastliðinn. Eftir að flakið af Hood fannst 2001 hefur ýmislegt komið í ljós sem sannar að Holland stjórnanda Hood urðu ekki á mistök og hans áætlun var hárrétt. Hefði Holland gefist 2-3 mínútur í viðbót áður en að skipið fékk feigðarskotið, þá hefðu áform hans kannski heppnast og Bismarck lægi hér á Grænlandssundi en ekki Hood.
Egill Þorfinnsson, 6.10.2008 kl. 15:22
Þakka kærlega fyrir greinargóðar upplýsingar .. Kveðja
Frikkinn, 6.10.2008 kl. 17:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.