Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2008

Læra menn ekkert af sögunni ?

Sama er mér hvort Kosovo getur þrifist sem ríki og þá væntanlega sem baggi á Evrópusambandinu, en ég held samt að menn ættu að fara varlega í að viðurkenna þetta skríparíki. Það eru fleiri smáþjóðir innan landamæra í Evrópu sem fara þá  eflaust að huxa sinn gang og vilja sjálfstæði . Baskar og Katalónar á Spáni, Ungverjar í Vojvodina og Slóvakíu, Belgía er líka með sama vandamál, Skotar  eru farnir að krefjast sambandsslita við Bretland.  þetta allt saman er farið að minna á atburðarásina eftir fyrra stríð þegar Austurríki-Ungverjaland var hlutað í sundur með tilheyrandi ósköpum og eflaust endar þetta Kosovo ríki í Stór- Albaníu og hvað gerist þá ?
mbl.is Bretar, Frakkar, Ítalar og Þjóðverjar viðurkenna Kosovo
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Russki dúski svínska

Heyriði mig veit Stefán stórlögga af þessu, þetta ætti löggan hér að gera líka.Myndi svínvirka, helst að selja bílinn samdægurs.

 

 


mbl.is Bíllinn hirtur fyrirvaralaust
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Siðleysi

Held að  ''gamli góði Villi'' ætti að taka hatt sinn og staf og hverfa á vit sögunnar, þarmrými borgarbúa hlýtur að vera á þrotum.


Harðir í háloftunum.

Eitthvað að í þjálfununni eða hvað ? Fara þeir þá ekki bara að krassa á næsta fjall , eða háhýsi þegar blóðið rennur ekki lengur til skyldunnar, heldur í langvöðvann. Ísraelskir flugmenn hafa verið ansi duglegir í gegnum árin að hitta ekki skotmörkin.
mbl.is Orrustuflugmenn á Viagra?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bobby Fischer goes to war..

Ég var pjakkur þegar einvígið fræga fór fram og fór 1-2 að sjá kappana tefla, og var það ógleymanlegt, mikil stemming og skynjaði maður vel spennuna í kringum einvígið,kalda stríðið við skákborðið í algleymingi.  Bobby bjó í svo kölluði DAS-húsi sem var í Vogalandinu í Reykjavík minnir númer ellefu, ég átti heima þarna rétt hjá,og þvældist oft í kringum húsið í von um að sjá Bobby, alltaf var hópur fólks við húsið að reyna sjá hann,fréttamenn , krakkar og allskonar fólk.  Mér er það minnisstætt að hann kom oft á fleygiferð út úr húsinu og yrti varla á nokkurn mann eða það minnir mig og stökk inn í bíl sem beið hans. En einum vini mínum tókst að komast að honum dag nokkurn, þegar það var fámennt eitt skiftið við húsið, talaði við hann og fékk eiginhandaráritun frá Bobby og lifði lengi á því.


mbl.is
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að virða röðina.

þetta er eitthvað sem mætti kenna íslendingum, en ég er ekki sammála þessu með innflytjendur. Þeir eru stór hluti viðskiftavina á mínum vinnustað og eru nánast undantekningalaust kurteisari en okkar kæru landar.

mbl.is Vill kenna innflytjendum að standa í biðröðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

VAR VOFFINN MÁLIÐ

Óneitanlega hvarflar að manni að hundinn hafi vantað félagsskap.

mbl.is Saman á ný?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Var það fullkomið morð ?

Er þetta ekki dæmigerður amerískur lögfræðingur, kann alla klæki og ósvifni. Eflaust fróðlegt engu að síður fyrir þá sem ganga með amerísk lögfræðidrama í maganum. Ég er þeirrar skoðunar að vörn hans fyrir Simpson hafi verið vafasöm og réttlætið ekki náð fram að ganga. Ekki betri er vörnin fyrir mannætuna Tyson, hann lenti þó í grjótinu . Veit ekki hvort Derschowitz hafi varið hann þá ?
mbl.is Verjandi O.J. Simpson með námskeið á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

FORSETINN OKKAR:

Hann hefur staðið sig þrælvel að mínu mati og má mín vegna sitja þangað til hann fer á eftirlaun. Það er betra að vera umdeildur en óumdeildur. Gott að Forsetinn taki þátt í þjóðfélagsumræðunni og bakkupp fyrir þjóðina að vita að Forsetinn tjáir sig um málefnin.
mbl.is 86% styðja Ólaf Ragnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afríka cops.

Frakkar hafa frá því nýlendutímanum lauk gætt hagsmuna sinna og ríkisborgara með hersetu í mörgum Afríkulöndum, og oftar enn ekki blandast inn í innanlandsátök t.d á Fílabeinsströndinni Kongó og víðar,já og íChad . Þar er ein stærsta herstöð þeirra utan heimalandsins þ.e Chad, og hafa Frakkar oft verið kallaðir Africa cops.
mbl.is Frakkar senda liðsauka til Tsjad
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Frikkinn
Frikkinn

Winston Churchill ( 1874-1965. ) Smekkmaður á vindla og Wiskey.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband