Leita í fréttum mbl.is

Eru rasismi á uppleið ?

Það er með ólíkindum að til skuli fólk sem sér ásæðu til að agnúast út í Pólverjana, nú þegar hluti þeirra er á förum. Þeir komu í leit að vinnu og peningum og hver vill ekki fá borgað fyrir að vinna. Einu sinni var til stór hópur farandverkamanna sem fór landshluta á milli að vinna eftir því hvar uippgripin voru og engum datt í hug að úthúða því fólki. Við erum öll gullgrafarar í eðli okkar og fólk ætti að skammast sín þegar það er að hnoða í Pólverjanna. Þeir eru sumir hverjir komnir til að vera og við verðum að venja okkur við það. Ég þekki nokkra Pólverja og get ekki sagt annað en að þeir séu ágætis fólk. En það eru líka til Íslendingar sem telja sig yfir aðra hafnir, og líta niður á landa sína í krafti auðs og valda, þessum hóp sem er í nöp við Pólverjana væri nær að beina spjótum sínum að þeim og því óréttlæti sem við gengst hér félagslega jafnt og launalega. Það vandamál var til áður en þeir komu og engin virðist hafa dug til að reyna leysa það.
mbl.is Hópast heim til Póllands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Breytir engu hvor sigrar.

Mér þykir ekki skifta máli hvernig þessir tveir ágætu menn raða gæðingunum sínum fyrir komandi kosningar. Þeir eru báðir sem forstar hvort eð er stórhættulegir umheiminum, umhverfinu og ég fæ ekki séð að framkoma þeirra við Evrópumenn  sé þannig að það eigi að hampa þeim, annar þeirra ku hafa reynt að stela Idol ímynd Kennedys heitins með flakki á milli höfuðborga Evrópu.  Ekkert nema sandryki þyrlað upp svo enginn sæi úlfshaminn. Sorglegt að Bandaríkjamenn eigi ekki betri valkosti.
mbl.is Hver er Sarah Palin?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þjóðverjar í sparifötum

Svíarnir eru ekki að ástæðulausu kallaðir þjóðverjar í sparifötunum. Ágætur útvarpsmaður sagði einu sinni að Svíþjóð væri stærsta hommanýlenda í heimi, veit ekki hvað er til í því en maður þarf að kynnast þeim til að finnast þeir skemmtilegir.                 Helena systir mín ég er ekki að punda á þig þetta með sænska.
mbl.is Svíar telja sig snyrtilegasta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

The Final Cut

Að mínu mati var bezta plata Pink Floyd The Final Cut, tregablandin og svo mikill söknuður í henni, mér finnst stundum hún hafa verið framhald af The Wall. Hlusta á hana alltaf öðru hvoru. Tærir snigglingar(snillingar) og ótrúlega góðir.
mbl.is Pink Floyd og Renée Fleming fá Pólarverðlaunin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Scotland Forever

Hann er alltaf dulítill köggull og eini sanni James bond. Flottur og kemur alltaf vel undan feldi.
mbl.is Mjólkurpósturinn í Edinborg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver fékk svarta-Pétur ?

Núna eru einhverjir háir herrar að slá sig til riddara með þessum gjörningi, hræsnin er lágkúruleg hjá þeim . Sorglegt.
mbl.is Ramses kemur í nótt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að stela hundum

Sorglegt að einhver leggist svo lágt að stela gæludýrum annara. Hvort tveggja eru tegundir sem má selja fyrir dágóðan pening ef það er það sem er að gerast. Vona svo sannarlega að dýrin eigi eftir að finnast svo eigendurnir geti tekið gleði sína á ný.
mbl.is Hundar hverfa í Grímsnesi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Framsókn er tímaskekkja.

Af hverju í ósköpunum er Guðni að blása í lúðra á þessum tímapunkti ? Hann hafði 12 löng ár með Dóra fína í ríkisstjórn til að láta ljósið skína og nú þegar þjóðin er búin að hafna Framsóknarflokknum þá koma óvæntir dauðakippir í Guðna greyið. Æ farðu bara heim á eftirlaun , þú fitnar örugglega á þeim.
mbl.is Guðni í fundaherferð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hún var hrikalega flott....sem forsætisráðherra.

Maggie Thatcher var ekki að ásæðulausu kölluð járnfrúin, enda hörkunagli þar á ferð. Reif upp þjóðarstolt brezkra með Falklandseyja-ævintýrinu ruggaði reyndar flotajafnvæginu á N-Atlantshafi með því að senda heimaflotann til S-Atlantshafsins. Lifði af eitt stykki morðárás  IRA í Brighton 1984 að mig minnir. En hvað um það, hún var hallærisleg í klæðaburði, ljótar handtöskur og allveg dæmalaust brezk, en það var líka trikkið hennar. Einn skipsfélagi minn átti sér þann draum að deila með henni sæng en ekkert varð af því svo kunnugt sé. Því miður var henni rutt bókstaflega frá enda hafði hún ekki vit á að hætta á toppnum.
mbl.is Thatcher þjáist af elliglöpum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Strákarnir okkar /Fáninn okkar

Á  þessum bæ fór húsmóðirin út með flaggið kl hálfátta og dró hann að húni. Fánann á að nota sem mest og oftast við öll möguleg tækifæri.

 

     TIL ÞESS ER ÍSLENZKI FÁNINN.470437A[1]

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


mbl.is Íslendingar flagga fyrir strákunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Frikkinn
Frikkinn

Winston Churchill ( 1874-1965. ) Smekkmaður á vindla og Wiskey.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.9.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband