Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Gullströndin

Mikið er það dapurlegt að sjá verkalýðsforkólfana fórna höndum í undrun og örvæntingu yfir hve staðan á þjóðarbúskapnum er slæm, og segja að um næstu áramót verði fjandinn laus við endurskoðun samninga. Mín skoðun er sú að þessir menn hafa gjörsamlega brugðist hlutverki sínu í þessum gjörningi, ef þeir hefðu unnið heimavinnuna sína  og ekki huxað um að geta haft ótruflaðan nætursvefn. Ef hagfræðingar ASÍ væru með glóru hefði mátt sjá þessa stöðu fyrir. Alveg teknir í bólinu og með allt niður um sig, þeir ættu að sjá sóma sinn, axla ábyrgð og hætta. Ég held að allir sjái að menn sem hafa starfað í 15 og upp í 30 ár á verkalýðsskrifstofu eru löngu komnir fram yfir síðasta söludag. Kannske eru  sætleikar valdanna og tilfinningin að velta sér upp úr peningunum okkar slík, að þeireru ákveðnir í að engir aðrir skuli komast á gullströnd auðævanna, auðævanna sem við greiðendur félagsgjaldanna höfum lagt þeim til, þeir hafa byggt upp slíka múra að það er ógjörningur að fá einhverju breytt innan frá.

Hvað er að gerast ?

Mér þykir undarlegt að valdstjórnin skuli sekta borgara þessa lands fyrir að hafa skoðanir á hlutum. Allt þetta er farið að minna á gamla sovét, hvað næst ? Verða bílstjóarnir sendir í endurhæfingu og heilaþvott ? Eru valdhafar hafnir yfir gagnrýni ? Borgararnir hafa enginn önnur úrræði en þessi t.d þegar allt annað gengur ekki,því  hefðin fyrir alvöru mótmælum er löngu horfin. Ég styð bílstjórana 100% í þessum aðgerðum þeirra og bíð rólegur í morgum umferðinni
mbl.is Mikill hiti í bílstjórum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hraðmælingu strax

Lögreglan mætti gera meira af því að hraðamæla í íbúðarhverfum, ég bý í Ásahverfinu í Garðabæ  og þar er 30 km hámarkshraði, hann er oftlega ekki virtur þar af flestum ökumönnum, t.d strætisvagnar aka þar oft yfir hraðamörkum.  ég kalla eftir að lögreglan mæli hraða á Ásabrautinni. Er orðin hundleiður að fá blikk í afturgluggann, þegar maður ekur þarna um.
mbl.is 16 óku of hratt í íbúðargötu í Hafnarfirði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afhverju að lifa í fortíðinni.

Er ekki tími tilkomin að fara horfa fram á við . Auðvitað var útrýmingarherferð nasista gegn gyðingum hræðileg og eitthvað sem gerist vonandi ekki aftur, en er ekki eitthvað í nútímanum sem þarfnast frekar aðstoðar. Á stöðugt að núa sér upp úr fortíðinni og krefjast hefndar.  Ég sé ekki af hverju þjóðverjar nú tímans eiga líða fyrir grimmdarverk forfeðranna, o.k 60 ár eru ekki langur tími, og margt fólk sem man striðsárin á lífi. En er ekki komin tími á sættir og  reyna lifa í friði. Gyðingar lentu illa í hrammi þjóðverja en það gerðu fleiri. Ægilegar fórnir pólverja og sovétmanna eru ekki gleymdar í þeim löndum. Þjóðverjar þjáðust líka mikið á stríðsárunum og það er fyrst nú sem þýskir ráðamenn hafa viðurkennt það. Fortíðin þarf ekki að gleymast en má ekki líka læra af henni ..að þjóðir heimsins lifi saman í friði og vonandi batnandi heimi, þar sem draugar fortíðarinnar eru ekki vaktir upp með reglulegu millibili. 

 


mbl.is Fórnarlömbum helfarar greiddar bætur í Belgíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

H.M.S Hunter.

Það er eitthvað svo heillandi við skipsflök, t.d þetta skip. Sagan er svo ótrúlega nálæg í tíma, og þessir atburðir eru mönnum enn í fersku minni, og enn minnast ættingjar þeirra sem fórust. Orustan um Narvik varð banabiti þýska herflotans og bar hann aldrei sitt barr eftir það  þó að sigurinn félli þjóðverjum í skaut.
mbl.is Herskip á hafsbotni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ASÍ og samningarnir

Auvitað fá þeir erlendu verkamenn sem hér eru að greiða atkvæði um samningana, en er ekki dáldið hætt við að það sem okkur finnst lítið finnist þeim mikið. Það hefur alltaf verið lítil þátttaka í póstatkvæðagreiðslum sem verkaalýðsfélögin bjóða oft uppá t.d V.r eða Efling, grátlega lítil reyndar, þetta ætti að  vera fólki hvatning að taka þátt í atkvæðagreiðslum um þessa samninga og hafa áhrif á hvort það þessir samningar verða samþykktir. Það er dáldið fúlt að sitja uppi með eitthvað sem maður vill ekki , og hafa ekki greitt atkvæði.  Ég er ekki að tala gegn því að erlent vinnuafl fái að greiða atkvæði, en bendi á að þetta fólk er miklu áhugasamara um kaup sín og kjör en við erum. sættir sig kannske við minna en við viljum fá . Ég hvet launþega landsins að sýna samningum áhuga og lesa vel það sem er í boði og taka síðan afstöðu.  Launþegar landsins eiga skilið að ASÍ skili okkur mannsæmandi launakjörum en engu gumsi sem er þegar farið að ryrna vegna verðhækkana eftir að skrifað var undir.


mbl.is Þýtt fyrir þúsundir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

gaman að byrja að blogga juhú

Jæja, þá er maður byrjaður að blogga eins og allir hinir,

« Fyrri síða

Höfundur

Frikkinn
Frikkinn

Winston Churchill ( 1874-1965. ) Smekkmaður á vindla og Wiskey.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (10.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband