Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2010

Skrýtið mál.

Þetta mál er að taka á sig undarlega mynd,  slóðin eftir morðingjann hlýtur að "kólna" eftir því sem lengra tími líður frá morðinu. Manni dettur helst í hug að þetta tengist erlendum glæpasamtökum .
mbl.is Manninum sleppt úr haldi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvílík "prímadonna " Sigurður

Það er eins og allir bugti sig og beygi fyrir karlgarminum, vitið til vinir í kerfinu eiga eftir að bjarga honum. Eflaust fer hann í sjálfskipaða útlegð á einhverri eyju í Karíbahafinu. Eftir nokkur ár kemur hann svo heim að eyða ellinni á æskuslóðunum....
mbl.is Sigurður mættur í yfirheyrslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Málið leyst ?

Vona að Lögreglan leysi málið sem fyrst og verði snöggir að því....Fólk vill held ég að morðinginn finnist sem snarlegast
mbl.is Maður í haldi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er verið að fela eitthvað ?

Þessi fundur fyrrum Biskupsdóttur er dálítið undarlegur, manni finnst eins og eitthvað sem hún veit má ekki koma upp á yfirborðið, atburður eða eitthvað sem hún vill ekki heldur tjá sig um við fjölmiðla.

Einnig orð starfmanns Biskupsstofu um að "oft má satt kyrrt liggja ". Hverju er verið að leyna ?

 Er það einkamál kirkjunnar að kynferðisofbeldi þrífst eða þreifst í skjóli hennar ? Ég segi nei við slíku .


mbl.is Starfsmenn kirkjunnar skimaðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kristján IX konungur Íslands og Danmerkur

Þetta er ansi merkilegt, en samt ekki skrýtið í ljósi þess að hann var ekki borin til valda í Danmörku heldur boðin krúnan þegar Aldinborgarar urðu aldauða við lát Friðriks VII. Eflaust hefur Kristján haft sterkari taugar til þýskra í upphafi valdaferils síns enda borin og barnfæddur í Slésvík en hann er samt einn ástsælasti konungur sem danir hafa haft og okkur Íslendingum hollur ..... enn og aftur .

 

   KÓNG  VILJUM VIÐ FÁ


mbl.is Bauð Þjóðverjum Danmörku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Virðingarleysi lýðsins

Þessir mótmælendur bera greinilega enga virðingu fyrir lögum og reglum þessa lands, beina reiðinni í rangan farveg sem sagt að lögreglunni. Þetta sama fólk er greinilega tilbúið að brjóta allt og bramla til að fá SÍNUM vilja framgengt eða með öðrum orðum ávísun á stjórnleysi þar sem sá sterkasti bælir niður andstöðu og þá heitir það alræði
mbl.is Sýndu mótmælendum samstöðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að hafa persónulega skoðun...

Hann var að segja að hver og einn bæri ábyrgð á sjálfum sér og er það vel, en hitt er annað mál hvort að maður í svona stöðu láti hafa eftir sér slík ummæli ......En eflaust er hann afar fær Lögreglumaður svona hálfgerður Erlendur .... hehe


mbl.is Björgvin hættir sem yfirmaður kynferðisbrotadeildar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig er tölfræðin ?????

Er að velta fyrir mér hvort útlendingar sem flytja til síns heima eru inn í svona tölfræði eða hvort það eru einungis frónarar sem eru taldir, annars er athyglivert að fólki hafi ekki fækkað síðan vesturferðirnar voru í hámarki.....
mbl.is Mesta fólksfækkun í 122 ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Breytir engu

Alger óþarfi með að vera einhvern hlandsperring hvort gosinu sé lokið eður ei, annað hvort tekur það sig upp og endar þá væntanlega einhvern tímann á næstu misserum eða málið er dautt og Eyjafjallajökull lagstur í dvala aftur, og gýs líklega einhverntimann á 23. öldinni ef að líkum lætur, þetta er gangur náttúrunnar og við ráðum engu þar um....


mbl.is Vill ekki lýsa yfir goslokum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eitt eintak vantar....

En Tippasafnið hlýtur að toppa þegar maðurinn sem lofaði skemmtaranum sínum er allur og limnum verður stillt upp
mbl.is Hryllingur á Húsavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Frikkinn
Frikkinn

Winston Churchill ( 1874-1965. ) Smekkmaður á vindla og Wiskey.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 9
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband