Leita í fréttum mbl.is

Helvíti á jörðu.

Svona segir meira en hægt er að ímynda sér. Einelti  getur átt sér stað allstaðar án þess að hafa birtingarmynd nema hjá þeim sem verður fyrir því. Það er  líka upplifun án þess að gerandinn geri sér grein fyrir því.
mbl.is Ætlaði að pynta þau og drepa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég er fórnarlamb mjög grófs eineltis og það er eins og ég hafi skrifað
þessa grein. Ég hef óskað gerendunum ítrekað ómældra þjáninga og geri enn
þrátt fyrir að ég hefi leitað mér og fengið einhverja hjálp. Það sem hefur
þó hjálpað mér mest er ómældur stuðningur (ekki kannski skilningur því
hver skilur svona nema sa sem hefur lennt í því) vina minna. Ég þori alveg
að segja frá því í dag að einn af gerendunum missti bróður sinn sem framdi
sjálfsmorð. ÉG GLADDIST. Er einhver sem heldur að það sé eðlilegt. Ekki ég
allavega og ég er ekki alveg viss hvað ég myndi gera ef ég kæmist að því
að einhver væri að beita systra börn mín sama ofbeldi og ég var fyrir. Ég
vona að fólk gagnrýni mig ekki fyrir að skrifa þetta, þetta er bara satt
og sárin mín eru ekki gróin þótt liðin séu 20 ár og ég vinni í mínum málum
enn. Einelti er ofbeldi sem ég held að ætti að falla undir sama refsiramma
og nauðgun. Refsilög er samt þannig á Íslandi að gerendum á barnsaldri er
ekki refsað, en ég segi bara fyrir mína parta að ég er stórskemmdur
einstaklingur. Verst er að þrátt fyrir framfarir er enn verið að beita
einelti og margir stjórnendur skóla og vinnustaða líta framhjá því og taka
jafnvel þátt. Að leifa eineldi að viðgangast er að vera meðsekur í að
skila út í þjóðfélagið einstaklingum sem tolla illa í vinnu, þurfa marga
veikindadaga og eru mun afkasta minni en stjórnendur hafa hugmynd um.
Einnig kosta þessir einstaklingar okkur öll miljaraða. Svo ég hvet þá sem
hafa minnsta grun um að einhverjum líði illa vegna eineltis til að leggja
fram hjálparhönd. Það væri meiri greiði fyrir alla þjóðina en flestir gera
sér grein fyrir. Stoppum einelti, veitum gerendum geðhjálp og verndum
þolendur. Margir þolendur verða nefninlega gerendur í framtíðinni. Ég veit
alveg hvað ég er að segja! Reundar finnst mér að ég ætti ekki að þurða að
borga fyrir sálfræðihjálp, en það er efni í annan pistil. Takk fyrir að
lesa þetta.

E. (IP-tala skráð) 28.9.2008 kl. 12:38

2 Smámynd: Frikkinn

Mikið til í þessu hjá þér og tek heilshugar undir það. Og takk fyrir innlitið ........ Kveðja.

Frikkinn, 28.9.2008 kl. 12:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Frikkinn
Frikkinn

Winston Churchill ( 1874-1965. ) Smekkmaður á vindla og Wiskey.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.4.): 19
  • Sl. sólarhring: 149
  • Sl. viku: 162
  • Frá upphafi: 201540

Annað

  • Innlit í dag: 19
  • Innlit sl. viku: 148
  • Gestir í dag: 19
  • IP-tölur í dag: 19

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband